Andy Robertson er ekki í leikmannahópi Liverpool í dag eftir að hafa meiðst á ökkla í landsleik með Skotlandi á dögunum.
Conor Bradley kemur inn í liðið frá tapinu gegn Man Utd í enska bikarnum og þá er Ibrahima Konate mættur á bekkinn eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.
Roberto De Zerbi gerir þrjár breytingar á sínu liði sem mætti Roma í síðasta leik fyrir landsleikja hléið.
Jakub Moder, Carlos Baleba og Joel Veltman koma inn í liðið. Joao Pedro og fyrrum Liverpool maðurinn James MIlner hafa verið meiddir að undanförnu og eru áfram á meiðslalistanum.
Liverpool: Kelleher, Bradley, Quansah, Van Dijk, Gomez, Mac Allister, Endo, Szoboszlai, Salah, Nunez, Diaz.
Brighton: Verbruggen, Lamptey, Van Hecke, Dunk, Estupinan, Gross, Veltman, Moder, Baleba, Adingra, Welbeck.