Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 20:31
Brynjar Ingi Erluson
Benzema fær að fara til Al Hilal - „Here we go!"
Mynd: EPA
Karim Benzema hefur fengið leyfi til að ganga í raðir Al Hilal frá Al Ittihad í Sádi-Arabíu en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Al Hilal hafði náð samkomulagi við Al Ittihad um kaup á Benzema, en félögin eru bæði í eigu PIF (ríkissjóðs Sádi-Arabíu).

Þegar fréttirnar bárust brást Cristiano Ronaldo, leikmaður Al Nassr, illa við. Hann spilaði ekki með liðinu í kvöld til að mótmæla ákvörðunum PIF.

Al Nassr er einnig í eigu PIF en Ronaldo telur þá sem halda utan um ríkissjóðinn vera að gera upp á milli félaga, eins og í þessu tilviki með Benzema, sem er að ganga í raðir toppliðsins.

Sádi-arabíska deildin setti félagaskipti Benzema á bið, en hefur nú heimilað þau. Gengið var frá endanlegu samkomulagi í kvöld og verður hann staðfestur sem leikmaður Al Hilal á næstu klukkutímum.


Athugasemdir
banner
banner