Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 10:00
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Ástæðan fyrir því að hinn goðsagnakenndi San Siro mun brátt kveðja
Mynd: EPA
Setningarathöfn vetrarólympíuleikana á Ítalíu á föstudaginn verður líklegast síðasti stóri heimsviðburðurinn sem fer fram á hinum goðsagnakennda San Siro leikvangi, Giuseppe Meazza, í Mílanó.

Borgaryfirvöld hafa samþykkt að Inter og AC Milan fái nýjan nútímalegan leikvang sem verður reistur þar sem bílastæðaplan við San Siro er nú staðsett.

Paolo Scaroni, forseti AC Milan, segir að leikvangurinn sem muni rísa verði glæsilegur, færi áhorfendur nær leiknum og gefi félögunum mun meiri tekjumöguleika. Áætlað er að framkvæmdir hefjist á næsta ári.

Margir sögulegir fótboltaleikir hafa farið fram á San Siro en BBC heimsótti leikvanginn á dögunum og hefur gefið út stutta heimildarmynd um þetta magnaða mannvirki sem verður bráðum rifið niður.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner