Man Utd gæti misst Fernandes - Napoli vill Mainoo - Barcelona og Liverpool berjast um Upamecano
Maggi fékk rautt spjald: Beittir óréttlæti
„Ótrúlegasti leikur sem ég hef spilað, alveg galinn“
Láki: Hef þurft að setja saman tvö eða þrjú lið
Lárus Orri: Frábært að vinna ÍBV í roki
Fyrirliðinn segir stöðuna skelfilega - „Auðvitað er maður skíthræddur um að falla með KR“
Óskar: Ég get ekki dottið í hyldýpi þunglyndis
Einar Guðna: Við ætlum að vera þarna á næsta ári
„Verður gaman að sjá Breiðablikstreyjuna á næsta ári"
Ótrúleg fyrstu tvö ár í atvinnumennsku - „Ég elska Ísland"
Berglind Björg: Þú verður eiginlega að spyrja hana!
Kom heim eftir erfiðan tíma í Sviss og er núna tvöfaldur meistari
Birta um magnað sumar: Vorum oft inn í Fífu á morgnana
Guðni Eiríks: Skortur á fókus
Thelma Karen: Það verður fróðlegt að sjá sendingarhlutfallið
Arnar: Hver hefði trúað því eftir Kósovó leikina?
Álfhildur Rósa: Við samgleðjumst honum heldur betur
Einar Guðna: Þetta var þroskuð frammistaða
Nik: Aðal fókusinn er Breiðablik
Óli Kristjáns: Þetta snerist ekkert um það
Segir þetta varla gerast súrara - „Þú getur hringt í mig á morgun“
   lau 04. október 2025 17:46
Kári Snorrason
„Ótrúlegasti leikur sem ég hef spilað, alveg galinn“
Elmar Kári Cogic.
Elmar Kári Cogic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding gerði dramatískt jafntefli við KR á Meistaravöllum fyrr í dag. KR var með eins marks forystu framan af leik, en Afturelding jafnaði úr vítaspyrnu undir lok leiks. KR-ingar svöruðu þá um hæl og komust í 2-1 en Elmar Kári Cogic jafnaði metin á nýjan leik þegar langt var liðið á uppbótartímann. 

Elmar mætti í viðtal að leik loknum. 


„Þetta er ótrúlegasti leikur sem ég hef spilað, alveg galinn. Skemmtilegt að ná þessu stigi, hvert stig skiptir auðvitað öllu máli. Við förum með jákvæðari hugsun í næsta leik.“

„Ógeðslega mikill karakter í strákunum, góð liðsheild sem við erum með. Það sést að við gefumst ekki upp þar til að lokaflauti. Það sást hér í dag, þrátt fyrir að fá mark á okkur. Það getur hver sem er sokkið niður og hætt en við höldum áfram og náðum að setja mark hér í lokin.“

Afturelding er einu stigi frá Vestra sem er í öruggu sæti, en þeir spila á morgun.

„Hver einasti leikur er ótrúlega mikilvægur. Við erum að spila á móti þessum liðum sem er í neðri hlutanum. Þá þarf bara að vinna alla þessa leiki, við þurfum að hugsa um okkur og gera okkar. Ef við vinnum rest þá höldum við okkur uppi.“ 

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner