Þeir Kristinn Jakobsson og Gunnar Jarl Jónsson verða dómaraeftirlitsmenn í tveimur leikjum kvöldsins í Sambandsdeildinni.
Gunnar Jarl Jónsson er eftirlitsmaður í Slóveníu þar sem Celje fær gríska liðið AEK í heimsókn. Dómarateymi leiksins er frá Úkraínu.
Þá verður Kristinn Jakobsson á Pittodrie leikvanginum í Skotlandi þar sem Aberdeen mætir Shakhtar Donetsk. Dómarateymið sem Kristinn tekur út er frá Króatíu.
Leikirnir eru liðir í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar og hefjast þeir báðir klukkan 19:00.
Athugasemdir