Kane gæti tekið við af Lewandowski - Amorim fær pening - Camavinga til Englands?
Sjáðu lætin á Króknum - Ætluðu að vaða í dómarana
Konni: Bara Derby slagur og við vel stilltir
Sverri Hrafn: Þetta var bara algjör þvæla
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
   fim 18. júní 2020 22:04
Fótbolti.net
Elísa Viðars: Ekkert grín að mæta á Eimskipsvöllinn
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta skemmtilegur leikur. Þetta var baráttuleikur. Þær mættu okkur af mikilli hörku og við þurftum að hafa vel fyrir þessu í dag,“ sagði Elísa Viðarsdóttir, leikmaður Vals, eftir 2-1 sigur á Þrótti í kvöld.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Valur

Valsarar byrjuðu leikinn af krafti en Þrótturum tókst að bíta frá sér og úr varð hörkuleikur.

„Þróttarnir fóru að mæta okkur vel inná miðjunni og voru að vinna seinni boltann. Við vorum kannski frekar svona sloppy og ekki á okkar besta degi í fyrri hálfleik,“ sagði Elísa en þvertók fyrir að Íslandsmeistararnir hefðu vanmetið nýliðana.

„Nei, alls ekki. Við erum búnar að undirbúa okkur ótrúlega vel alla vikuna og fara yfir Þróttarana. Þær eru bara með hörkulið. Þær eru með frábæra útlendinga og ótrúlega þéttar og sterkar svo ég held það verði ekkert grín að mæta hér á Eimskipsvöllinn.“

„Ég held að allir leikirnir í sumar verði hörkukrefjandi og við þurfum að mæta tilbúnar í alla leiki. Það vilja auðvitað allir vinna Íslandsmeistarana,“
sagði Elísa meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner