Kane gæti tekið við af Lewandowski - Amorim fær pening - Camavinga til Englands?
Sjáðu lætin á Króknum - Ætluðu að vaða í dómarana
Konni: Bara Derby slagur og við vel stilltir
Sverri Hrafn: Þetta var bara algjör þvæla
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
   lau 20. júní 2020 16:35
Helgi Fannar Sigurðsson
Dragan: Verðum að spila mun betur
Dragan Stjojanovic.
Dragan Stjojanovic.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Það er aldrei gott að tapa. Mér fannst við spila mjög vel í fyrri hálfleik," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Fjarðabyggðar, eftir 2-1 tap gegn Haukum í fyrsta leik í 2.deildinni í sumar.

Fjarðabyggð leiddi í hálfleik en voru svo töluvert slakari aðilinn í seinni hálfleik og heimamenn í Haukum kláruðu leikinn.

„Það vantaði svolítið formið í seinni hálfleik. Við vorum að fá fimm nýja leikmenn fyrir 2-3 dögum og tveir leikmenn komu úr sóttkví á mánudaginn. Það er mjög erfitt."

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  0 Magni

Þrátt fyrir tapið í dag er Dragan bjartsýnn á framhaldið.

„Við verðum að spila mun betur og ég veit alveg að við verðum betri og betri með hverjum leik. Þetta er mjög erfitt fyrir lið sem er ekki búið að spila einn leik saman og ekki fá tvær æfingar saman. Það er samt svekkjandi að tapa."

Fjarðabyggð er spáð falli af þjálfurum deildarinnar fyrir tímabilið. Dragan segir að erfitt sé að spá fyrir um liðið.

„Við erum langt í burtu frá Reykjavík og spekingar eru ekki búnir að sjá okkur. Ég vona að þetta sé ekki rétt hjá þeim."

Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Athugasemdir