Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum sáttur eftir 2-0 sinna manna gegn ÍA í 19.umferð Pepsi Max-deildar karla í dag. KR komst með sigrinum skrefi nær Íslandsmeistaratitlinum. Rúnar segir hins vegar alltof snemmt að byrja að fagna.
„Við þurfum þrjú stig ennþá. Við eigum þrjá erfiða leiki eftir gegn liðum sem að allir spáðu topp þremur í sumar og það verður bara erfitt. Ég reikna með að við þurfum að fara á Hlíðarenda í næstu umferð og vinna til að tryggja þetta." sagði Rúnar eftir leik.
„Við þurfum þrjú stig ennþá. Við eigum þrjá erfiða leiki eftir gegn liðum sem að allir spáðu topp þremur í sumar og það verður bara erfitt. Ég reikna með að við þurfum að fara á Hlíðarenda í næstu umferð og vinna til að tryggja þetta." sagði Rúnar eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 2 - 0 ÍA
Þegar þetta er ritað er í gangi leikur Fylkis og Breiðabliks í Árbænum, en takist Fylkismönnum að vinna eru KR-ingar orðnir Íslandsmeistarar. Rúnar hafði hins vegar engan áhuga í að spá í þeim leik.
„Nei, ætli ég skelli mér ekki í golf bara að slá nokkra bolta." sagði Rúnar hlæjandi aðspurður hvort að hann ætlaði að fylgjast með fyrrnefndum leik.
KR-ingar komust yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki frá Óskari Erni og hélst staðan þannig allt þar til að Kristinn Jónsson gulltryggði stigin þrjú með frábæru marki undir lok leiks.
„Frammistaðan var fín og ég er ánægður með strákanna. Við héldum markinu okkur hreinu þriðja leikinn í röð sem að er ákveðinn sigur. Skagamenn liggja djúpt í fyrri hálfleik og leyfa okkur að halda boltanum. Við sköpum okkur ekkert voða mikið af færum en nægilegt þó til að skora. Í seinni gera þeir breytingar og við þurfum að fara að verjast. Ég er ánægður að við náum svo að klára þetta með marki frá Kristni til að róa taugar þjálfarans." sagði Rúnar um leikinn.
Nánar er rætt við Rúnar í spilaranum að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |






















