Kristófer Dan Þórðarson var stjarna Hauka í kvöld þegar hann skoraði þrjú og lagði upp eitt í 4 - 0 sigri gegn Njarðvík.
„Þetta er bara sturlað ég hef aldrei gert þetta áður, þrenna það er ekki hægt að biðja um mikið meira."
Tvö mörk fóru í netið eftir skalla frá Kristófer og lagði hann einnig upp mark með skalla.
„Ég vil gefa shoutout á Salih Heimi Porca hann er búinn að kenna með sprengikraft og að skalla í allt sumar."
Þetta var mikilvægur leikur fyrir bæði lið og Haukar sýndu meiri kraft í leiknum sem varð til þess að þeir unnu sanngjarnt.
„Við vissum að við værum að fara í úrslitaleik, við þurftum að koma bandvitlausir í þennan leik og það gekk upp."
Haukar mæta Keflvíkingum í næstu umferð og er þar mikið í húfi hjá Haukum sem vilja tryggja sæti sitt í Inkasso deild karla á næstu leiktíð.
Athugasemdir