Villa horfir til Jackson - Chelsea leggur aukna áherslu á Garnacho - Tottenham vill leikmann Mónakó
   mið 20. ágúst 2025 06:00
Auglýsingar
Skráning í Boladeildina fyrir veturinn - Sjö manna utandeild
Boladeildin - Vetrardeild 2025/26
Mynd: Boladeildin
Skráning er hafin í vetrardeild Boladeildarinnar tímabilið 2025/26, um er að ræða sjö manna utandeild sem Leiknir í Breiðholti stendur fyrir. Leikið er á gervigrasi á Leiknisvelli.

Mótið hefst í október og stendur fram til mánaðamóta mars/apríl. Almenna reglan er sú að leikið er um virka daga kl. 20 og kl. 21. Leikmenn sem spila í Bestu-deild eða Lengjudeildinni eru ekki löglegir í Boladeildinni. Krýndir verða meistarar bæði í A og B deild

Skráning fer fram á [email protected] - sendið tölvupóst með nafni liðs, nafni tengiliðs, netfangi tengiliðs og símanúmeri hans.

Þátttökugjald er kr. 140.000. Greiða þarf staðfestingargjald fyrir skráð lið í síðast lagi sunnudaginn 21. september að öðrum kosti verða tekin inn lið af biðlista. Staðfestingargjaldið er kr. 40.000 og fæst ekki endurgreitt ef lið hættir við þátttöku. Fullnaðargreiðslu kr. 100.000 verður svo að inna af hendi í síðasta lagi 15. október. Liðin sem tóku þátt síðasta vetur hafa forgang í deildina til 15. september.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 40.000 fyrir 21. september og fullnaðargreiðslu kr. 100.000 kr. fyrir 15. október eða greiða þátttökugjaldið í einni greiðslu kr. 140.000.

Greiðist inn á Íþróttafélagið Leikni,
kt. 690476-0299
banki 537-26-16904

Meira á heimasíðu deildarinnar
Athugasemdir
banner