Man Utd vill Vlahovic - Al Nassr vill Casemiro - Real Madrid vill Van de ven
Sjáðu lætin á Króknum - Ætluðu að vaða í dómarana
Konni: Bara Derby slagur og við vel stilltir
Sverri Hrafn: Þetta var bara algjör þvæla
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
   mið 22. júlí 2020 20:21
Baldvin Már Borgarsson
Addi Grétars: Vörðumst helvíti vel
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Arnar var í ágætis skapi eftir 0-0 jafntefli gegn FH í Kaplakrika fyrr í kvöld. Leikurinn var frekar tíðindalítill og jafnteflið sanngjarnt þegar upp var staðið en KA lokaði vel á sóknaraðgerðir heimamanna.

Lestu um leikinn: FH 0 -  0 KA

„Ég held að við getum alveg verið sáttir við stigið, mér finnst við hafa mátt gera meira frammávið en svona heilt yfir vörðumst við helvíti vel sem lið og gáfum FH mjög fá færi á okkur.''

„Við fengum besta færið í fyrri hálfleik þar sem við fengum opinn skalla, komum okkur oft í góðar stöður en FH var mun meira með boltann án þess að skapa sér mikið af færum.''


KA spilaði þéttan og góðan varnarleik í 4-1-4-1 leikkerfi, er það eitthvað sem koma skal hjá KA undir stjórn Arnars?

„Það fyrsta í þessu er að verjast vel og fá ekki á sig mark, þá er miklu auðveldara að vinna fótboltaleiki. Ég hef nú kannski verið þekktari fyrir það hingað til að vilja halda boltanum og spila fótbolta en við tökum þetta skref fyrir skref.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar talar Arnar betur um leikinn, stöðuna á liðinu og framhaldið.
Athugasemdir
banner
banner