Ólafur Ingi Skúlason fékk íslenskan haustrokleik í kvöld þegar Fylkismenn unnu HK 3-2.
„Þetta er búið að vera óvenju gott sumar, frábært fótboltasumar og fyrsti leikurinn þar sem það er smá lægð yfir landinu, það er bara hressandi."
„Þetta er búið að vera óvenju gott sumar, frábært fótboltasumar og fyrsti leikurinn þar sem það er smá lægð yfir landinu, það er bara hressandi."
Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 2 HK
Ólafur var nálægt hasarnum sem skilaði brottvísun Valdimars Þórs.
„Hann (Valgeir) var klókur og henti sér niður, ég veit ekki hversu mikið Valdi ýtti í hann en dómarinn mat það þannig að það væri rautt og við stigum bara upp eftir það og lokuðum punktunum."
Varnarleikur Fylkis í kjölfar spjaldsins kláraði leikinn.
„Heldur betur, við spiluðum betri varnarleik 10 en 11, við fórum að hlaupa meira hver fyrir annan og taka þessa extra metra sem að skiptir svo miklu máli, loka og færa hratt milli svæða. Það lá eðlilega á okkur en við náðum sigrinum."
Ólafur Ingi henti í eina svaðalegustu boltatæklingu sumarsins með allt undir í blálokin, hvað eiginlega fór í gegnum koll hans þá?
„Ég veit ekki hvort boltinn hefði farið inn þarna en það var bara ekkert annað að gera en að fórna bara öllu íenda er ég að drepast í löppinni eftir þetta. Við erum bara þannig gerðir að við leggjum okkur allir í þetta og ég vill sérstaklega benda á Stefán Loga, hann fékk krítík eftir síðasta leik og stóð heldur betur upp í kvöld."
Svo það verður ekki neitt annað en jákvætt að frétta úr Fylkisklefanum að þessu sinni?
„Já það verða allir hressir núna!"
Nánar er rætt við Ólaf í viðtalinu sem fylgir.






















