Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   lau 28. september 2019 17:26
Hafliði Breiðfjörð
Hannes: Extra mikilvægt að enda á jákvæðum nótum
Hannes átti góðan leik í dag.
Hannes átti góðan leik í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var ánægjulegt að klára þetta með fínum sigri og halda loksins hreinu. Sólin skín og það er hægt að leyfa sér að brosa eftir erfiðar vikur," sagði Hannes Þór Halldórsson markvörður Vals eftir 2 - 0 sigur á HK í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  0 HK

„Við förum alltaf á völlinn til að vinna en okkur fannst extra mikilvægt núna að enda þetta á jákvæðum nótum þó það væri ekkert undir. Bæði fyrir sálartetrið og til að reyna að búa til smá momentum fyrir næsta tímabil."

Það var hellingur að gera hjá Hannesi í leiknum í dag enda liðið eins og gatasigti varnarlega.

„Við vorum oft á tíðum galopnir í þessum leik og ýmislegt sem mátti betur fara. En við sluppum með þetta núna og ég er ánægður með að halda hreinu og ánægður með stigin."

Valur getur þakkað Hannesi fyrir að hafa ekki fengði á sig mark í dag því hann varði oft á tíðum alveg frábærlega.

„Takk fyrir það. Ég reyndi að vera fyrir því sem kom á markið eins og ég reyni alltaf. Það tekst ekki alltaf en það tókst í dag og var fínn dagur."
Slapp
banner
banner
banner