Ray þjálfari Grindavíkur var svekktur í leikslok eftir 1-0 tap á Valsvelli
Þetta gekk ekki upp í dag, hvað fannst þér skilja liðin að?
"Fyrsta markið eftir eina og hálfa mínutu. Ég sá ekki alveg markið og veit ekki hvað gerðist . Fyrri hálfleikur var ekki nógu góður en þær komu og gáfu allt annan leik í seinni hálfleik".
1-0 og það er alltaf séns, vonaðiru ekki að markið myndi koma?
"Við fórum að taka áhættur fram á við og fengum nokkrar skyndisóknir sem voru hættulegar. Það munaði svo litlu. Einsog við töluðum um, stundum er betra að tapa 3-0 frekar en 1-0 og vera mjög nálægt því að jafna. Ef við hefðum jafnað hefði leikurinn verið allt öðruvísi."
Markið kemur eftir 1.mínútu, eru stelpurnar bara ekki byrjaðar?
"Ég sá ekki markið og var ekki að horfa. Bjóst ekki við að fá á mig mark eftir eina mínútu. ég veit það ekki, einbeitingarleysi eða eitthvað.
Valur fær mikið af færum, hún ver mjög vel í markinu?
"Já og þær voru líka góðar í vörninni. Viviane er stórkostlegur markmaður markmaður. Það er leiðinlegt að fá á sig mark í byrjun leiks, ég þarf að sjá þetta aftur".
Nánar er rætt við Ray um framhaldið í deildinni og fleira í sjónvarpinu að ofan





















