Birnir Snær Ingason lagði upp bæði mörk Fjölnis í fyrsta sigri þeirra í PEPSI-deildinni síðan 27.maí nú í kvöld og brosti breitt í leikslok.
"Það var þvílíkur léttir í klefanum, búið að ganga illa síðustu leikir og því mikilvægt að vinna þennan leik svo við erum hrikalega sáttir".
"Það var þvílíkur léttir í klefanum, búið að ganga illa síðustu leikir og því mikilvægt að vinna þennan leik svo við erum hrikalega sáttir".
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 1 Fylkir
Aðstæðurnar í Grafarvognum í kvöld voru frekar erfiðar.
"Þessi leikur var frekar mikið basl, menn voru voru að missa boltann og með lélegt touch. Kannski var það veðrið, rigning og völlurinn mjög blautur auk þess smá vindur þarna í byrjun. Hvað gerðist í lokin? Ég veit það ekki, menn voru orðnir þreyttir og þá getur allt gerst!"
Getur þessi sigur í kvöld sparkað Fjölnismönnum í gang og gefið sjálfstraust í næstu verkefni?
"Næsta verkefni er KA fyrir norðan, við ætlum okkur að vinna hann, og...
...þegar hér var komið við sögu gat Bergsveinn Ólafsson ekki stillt sig um að aðstoða við viðtalið og sló þar með okkur Birni algerlega út af laginu, svona menn!
Nánar er annars í viðtalinu sem fylgir fréttinni, Birnir er ekki svona skakkur að eðlisfari - tækniredding leiddi þetta af sér!























