„Möguleikarnir eru góðir. Mér fannst leikurinn úti alls ekki frábær af okkar hálfu samt fannst mér við vera betri aðilinn. Ef við eigum toppleik hér og þeir líka þá ættum við að fara áfram," sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson varnarmaður Vals um möguleika liðsins á að komast áfram í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Valur mætir í kvöld Santa Coloma í seinni leik liðanna í einvíginu en Coloma unnu fyrri leikinn í Andorra 1-0. Leikurinn fer fram á Hliðarenda.
Valur mætir í kvöld Santa Coloma í seinni leik liðanna í einvíginu en Coloma unnu fyrri leikinn í Andorra 1-0. Leikurinn fer fram á Hliðarenda.
„Fyrsta sem kemur upp í hugann er að við vorum að falla í gildrur hjá þeim. Þetta er lið sem lætur sig mikið detta og dómarinn verðlaunaði þá fyrir það. Við létum það fyrir í taugarnar á okkur og við náðum aldrei upp almennilegu flæði í okkar leik. Sem varð til þess að við urðum pirraðir. Það verður allt annað í þessum leik."
„Við erum búnir að ræða það og við ætlum ekki að láta þessa hluti fara í taugarnar á okkur. Við vitum að þeir eru að fara tefja frá fyrstu mínútu og taka sinn tíma í horn, aukaspyrnur og innköst. Það er bara spurning um að láta það ekki fara í taugarnar á okkur. Ef við spilum okkar leik þá finnst mér líklegt á að við klárum þetta," sagði Eiður Aron.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en fyrir neðan má sjá viðtal við Ólaf Jóhannesson sem birtist í gær.





















