Víkingar töpuðu sínum þriðja leik í röð í Pepsideildinni í kvöld þegar liðið þurfti að lúta í gras gegn Grindavík suður með sjó.
Leikurinn fór fram við talsvert erfiðar aðstæður en mikið blés í Grindavík en svo fór að lokatölur urðu 2-1 Grindavík í vil.
Leikurinn fór fram við talsvert erfiðar aðstæður en mikið blés í Grindavík en svo fór að lokatölur urðu 2-1 Grindavík í vil.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 1 Víkingur R.
„Virkilega slakur fyrri hálfleikur þar sem ég geri mig sekan um hrikaleg mistök í fyrsta markinu. Fram að þvi fannst mér við bara vera í góðu formi en þetta mark svona algjör óþarfi og bara leiðinlegt.“
Markið sem Víkingar fengu á sig og Halldór minnist á þótti umdeilt en menn deila um hvort boltinn hafi farið inn fyrir línuna eða ekki. Hvað hafði Halldór um það að segja?
„Ég sá það ekki nógu vel en við erum búnir að heyra eitthvað hérna að hann hafi ekki verið inni en við treystum dómaranum til að dæma um það.“
Eins og áður sagði hafa Víkingar tapað þremur leikjum í röð og bíður þeirra erfitt verkefni í næstu umferð er þeir fá topplið Breiðabliks í heimsókn í Víkina.
„Það besta við að vera á botninum er að þú kemst ekki mikið neðar svo það er bara að spyrna sér upp og áfram. Breiðablik á mánudaginn, gott að það sé stutt í næsta leik og við ætlum bara að bæta upp fyrir þetta bull hér í dag.“
Sagði Halldór Smári Sigurðsson en viðtalið við hann má sjá hér í spilaranum að ofan.





















