Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
   fim 08. ágúst 2019 22:36
Mist Rúnarsdóttir
Vilhjálmur Kári: Erum að prófa ýmislegt
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við eiga helling inni í fyrri hálfleiknum þó þær hafi skorað þetta ódýra mark. Mér fannst við vera vel inni í leiknum og áttum alveg möguleika á að skora. Svo var auðvitað erfitt að vera manni færri og fá svo annað ódýrt mark á sig. Það var aðeins of mikið fyrir hópinn og við sköpuðum lítið í seinni hálfleik,“ sagði Vilhjálmur Kári Haraldsson, annar þjálfari Augnabliks, í samtali við Fótbolta.net eftir 2-0 tap gegn Haukum á útivelli.

Lestu um leikinn: Haukar 2 -  0 Augnablik

Eins og oft áður í sumar var lið Augnabliks að spila fínan fótbolta úti á velli, án þess þó að ná að skapa sér hættuleg færi eða skora mörk.

„Við erum að prófa ýmislegt,“ sagði Vilhjálmur um sóknarleikinn, en bakvörðurinn Kristjana Sigurz var til að mynda að spila framarlega á vellinum í kvöld og gerði það ágætlega.

„Við trúum því að það komi einhver á óvart í lokin og skori svolítið af mörkum.“

Augnablik situr í 6. sæti með 14 stig en pakkinn fyrir neðan þær er þéttur og bara tvö stig niður í fallsæti. Aðspurður um hvort Vilhjálmur hefði áhyggjur af því að Augnablik gæti sogast niður í fallbaráttuna svaraði hann:

„Ég held það hafi náttúrulega allir áhyggjur af því en við höldum ótrauð áfram og reynum að bæta okkar leik. Við höfum ekki fengið mörg mörk á okkur og höfum verið að spila ágætlega úti á vellinum. Við höldum svo áfram að vinna í því að skora mörk. Það hlýtur að detta hjá okkur í næstu leikjum.“

Nánar er rætt við Vilhjálm Kára í spilaranum hér að ofan en hann er meðal annars spurður um rauða spjaldið sem Telma Ívarsdóttir fékk og markmannsmál Augnabliks.
Slapp
banner