Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 11. júlí 2018 11:00
Egill Sigfússon
Birkir Már: Í topp þremur á Norðurlöndunum
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við búumst við erfiðum leik. Þetta er gott lið. Ég þekki þá frekar vel og veit hvað þeir geta og hvernig bolta þeir spila," segir Birkir Már Sævarsson, varnarmaður Vals, um leik liðsins gegn Rosenborg í Meistaradeildinni í kvöld klukkan 20:00.

„Við þurfum fyrst og fremst allir að eiga toppleik. Við þurfum að spila okkar fótbolta og vera solid varnarlega."

Birkir spilaði sjálfur lengi með Brann í Noregi og þekkir því vel hversu stórt lið Rosenborg er.

„Peningurinn og allt í kringum liðið gerir þetta að stærsta liðinu í skandinavískum fótbolta eða allavega topp þrír."

Á meðal leikmanna Rosenborg er Nicklas Bendtner, fyrrum framherji Arsenal.

„Við höfum ekkert farið sérstaklega í neina leikmenn frekar en aðra. Við tókum videofund um Rosenborg og vitum vel hvað við erum að fara út í. Allir leikmennirnir í liðinu eru góðir fótboltamenn og einhverjir af þeim eiga landsleiki."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Miðasala á leikinn fer fram hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner