„Þetta var mjög erfiður leikur. HK/Víkings liðið var frábært að mörgu leyti. Það er ekkert lið frábært að tapa 5-2 en þær stóðu sig virkilega vel og gáfu okkur góðan leik. 5-2 eru alltof stór úrslit miðað við frammistöðu þeirra," sagði Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Þórs/KA, eftir sigur á HK/Víkingi í Pepsi-deild kvenna í dag.
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 2 - 5 Þór/KA
Þór/KA hafði aðeins fengið á sig þrjú mörk í 10 leikjum fyrir leikinn í dag, en í þessum leik fékk liðið á sig tvö mörk.
„Ég er mjög ósáttur við að gefa mark úr föstu leikatriði, við leggjum mjög mikið upp úr því að verjast föstum leikatriðum. Núna erum við búin að fá á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum sem er dapurt. En "fuck it". Við erum búnar að vinna næstum því alla leiki, erum ósigraðar og skorum fimm mörk á móti liði sem mér fannst standa sig virkilega vel í dag. Ég get ekki verið ósáttur við margt."
Það sauð allt upp úr 77. mínútu og fékk Andri Hjörvar Albertsson, aðstoðarþjálfari Þórs/KA, að líta rauða spjaldið.
„Hún lemur í síðuna á leikmanninum og það fór fyrir brjóstið á Andra Hjörvari. Hann verður bara að fara í agabann núna," sagði Donni léttur að lokum.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir