Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur mætti með sína stráka í Laugardalinn þar sem lið Fram tók á móti þeim í loka umferð Inkasso-deildarinnar. Víkingur Ólafsvík sigraði 2-1 og endar liðið í 4 sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 2 Víkingur Ó.
"Þetta var bara eitt besta sumar sem ég hef upplifað eftir að hafa komið hingað. Sérstaklega miðað við hvernig veturinn og vorið var. Bara frábært að vera í toppbaráttu um mitt mót, eina sem situr í manni ennþá er þessi blessaði bikarkeppni"
Víkingar enduðu með 42 stig en það dugði ekki nema fyrir 4 sætið í deildinni. Liðið endaði með sama stigafjölda árið 2012 þegar liðið komst í fyrsta skipti upp í efstu deild.
"Mér finnst þessi deild mjög sterk. Sjáið bara lið eins og Selfoss með fullt af frábærum leikmönnum eru að falla"
"Við erum í betri málum en í fyrra með leikmannamál og verðum allavega í betri málum í Febrúar en í fyrra"
Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér fyrir ofan
Athugasemdir