„Ég er ánægður með Magna liðið að koma til baka eftir að hafa verið einum færri í rúmlega háfleik, við höfum ekki verið að slá nein heimsmet á útivöllum þannig að ég hlýt að vera sáttur," sagði Palli Gísla eftir dramatískar lokamínútur á Þórsvellinum á Akureyri þar sem hans menn jöfnuði þegar komið var fram í uppbótatíma á móti Þór.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 1 Magni
Magni missti lykilmann útaf snemma leiks og Sveinn Óli fékk rautt spjald á 45 mínútu.
„Þetta var rússíbanareið, missum Gunnar út snemma og búnir með tvær skiptingar í hálfleik.Við auðvitað komum hingað til að ná í þrjú stig því ekki veitir af en ég virði þetta stig. Við héldum þetta út og þá hlýt ég að vera ánægður með framlagið frá strákunum. Það er ýmislegt hægt ef svo ber undir. Strákarnir áttu þetta skilið fannst mér, þeir lögðu mikið á sig. Þetta hefur verið brekka og langt sumar, sérstaklega á útivöllum þannig að mér fannst þeir eiga þetta inni að fá loksins eitthvað fyrir vinnusemina og dugnaðinn."
Gunnar Örvar fór meiddur út af vegna höfuðmeiðsla.
„Hann missti úr byrjun á mótinu útaf höfuðhöggi, vonandi er það styttri tíma sem hann þarf til að jafna sig núna því við þurfum klárlega á öllum okkar mönnum að halda í þessari baráttu."
Magni er í botnsætinu, fjórum stigum frá öruggu sæti.
„Við þurfum klárlega að vinna einhverja leiki og við eigum skagann næst og það er flott áskorun að mæta liðinu í efsta sæti á Grenivík. Það er ekki auðvelt að vinna okkur þar. Við erum búnir að vinna fjóra leiki á Grenivík og ég held að þeir verði sex klárlega en svo verðum við að ná þessum fram sem við náðum hér í dag í hina tvo útileikina."
Hægt er að horfa viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















