„Þetta var erfiður leikur og mikil barátta. Við fengum fullt af fínum færum í fyrri hálfleik og sama í þeim síðari en Afturelding komu ákveðnar inn í seinni hálfleikinn og þetta var í raun fram og til baka út allan leikinn,“ sagði Veronica Smeltzer, markvörður Grindavíkur, eftir 1-1 jafntefli við Aftureldingu á útivelli.
Lestu um leikinn: Afturelding 1 - 1 Grindavík
„Við höfum átt í basli núna um miðbik móts en við erum búnar að gera tvö jafntefli í tveimur síðustu leikjum svo við erum aftur farnar að safna stigum,“ sagði Veronica sem vildi líta á björtu hliðarnar og horfa til þess að liðið hafi náð sér í stig frekar en að svekkja sig á að það hefði tapað niður forystu.
Grindavík hefur verið að ganga í gegnum erfiðan kafla á tímabilinu og Veronica segir helsta markmið fyrir seinni hluta móts vera að komast aftur í þann takt sem liðið fann í upphafi móts.
„Við ætlum bara að koma okkur aftur í gang. Við lentum í taphrinu en erum bara að reyna að byggja okkur upp aftur.“
Markvörðurinn hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu í sumar og segist kunna vel við sig í Grindavík.
„Það er dásamlegt að vera í Grindavík. Ég er frá Suður Kaliforníu. Þar er mikið af fólki svo ég elska að komast í annað umhverfi í litlum fiskibæ og við erum nálægt borginni svo þetta er fullkomið,“ sagði Veronica meðal annars en nánar er rætt við hana í spilaranum hér að ofan.






















