Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
   þri 31. júlí 2018 22:11
Sævar Ólafsson
Gummi Magg; Við erum að byggja upp lið
Guðmundur Magnússon fyrirliði Fram skoraði í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Leiknis og Fram var hreint út sagt stórgóð skemmtun í Breiðholtinu í kvöld þar sem gestirnir í Fram stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleiknum og gengu til búningsherbergja með 1-2 forystu. Í síðari hálfleik snerist taflið all rækilega þar sem Leiknismenn réðu ferðinni og jöfnuðu leikinn ásamt því að sækja hart að gestunum.

Þjálfari Fram, Pedro Hipólitó og aðstoðarmaður hans Ólafur Brynjólfsson voru báðir farnir úr Leiknisheimilinu þegar taka átti viðtal við þá og og því var það fyrirliði liðsins Guðmundur Magnússon sem sat fyrir svörum í þetta skiptið.

Aðspurður um leikinn sem var ansi kaflaskiptir hafði Guðmundur þetta að segja;

“Fyrri hálfleikurinn var bara mjög góður – förum inn með tvö eitt og töluðum um að lagfæra einhverja hluti og gera hitt og þetta, en svo bara komum við út og við hættum að spila“



Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  2 Fram

“Ég veit ekki hvað það var, hvort við hefðum verið hræddir við að taka af skarið eða hvað, eða hvort menn hafi ætlað bara að halda þessu og bíða eftir að tíminn væri búinn“

“Við erum búnir að vinna saman í tíu mánuði og búnir að fara yfir hluti ég veit hvað og við vitum hvað við eigum að gera og þegar við gerum þá þá spilum við eins og við spiluðum í fyrri hálfleik og þegar við gerum það ekki þá er það bara eins og í seinni hálfleik“ hafði fyrirliðinn um spilamennskuna og þá breytingu sem átti sér stað á spilamennsku liðsins eftir hálfleikinn.

Framliðið hefði með sigri jafnvel getað lætt sér upp í efri hluta deildarinnar – en ansi skýrar línur eru að myndast í deildinni á milli toppliðanna og svo hinna sem ætla að dansa línudans fyrir ofan liðin sem svo svamla í botnbaráttunni.

“Við náttúrulega förum inn í þetta mót bara með að reyna að byggja upp lið – með ungum strákum og reynslu inn á milli, eins og kannski sést núna þá vantar aðeins uppá reynslu að reyna að klára leikina en að fara upp í einhvern topppakka við getum gleymt því að horfa upp á það núna, við erum bara að reyna að vinna leikina og sjá hverju það skilar“ hafði Gummi Magg fyrirliði Fram um framhaldið að segja.


Viðtalið í heild sinni má nálgast hér í spilaranum að ofan.
Slapp
banner
banner