„Ég er alltaf sáttur með stigið," sagði Brynjar Þór Gestsson, þjálfari ÍR, eftir 1-1 jafntefli gegn Haukum á Ásvöllum í 20.umferð Inkasso deildar karla í kvöld.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 1 ÍR
„Við hefðum átt að nýta okkur það að komast í tvö eða jafnvel þrjú þarna í byrjun seinni hálfleiks þegar Haukarnir voru bara ekkert mættir þarna fyrstu tíu mínútnar í seinni hálfleik. Við fengum nokkuð mörg eða kannski ekki mörg, eitthver þrjú, fjögur algjör dauðafæri einn á markmann en við fórum afskapæega illa með það. Svo gefum við þarna klaufalegt víti en Haukarnir áttu sín færi og jafna þarna í lokinn. Svo ver Helgi þarna glæsilega síðasta skot leiksins þannig að svona við getum þakkað honum fyrir punktinn síðan bara eftir á. En eins og ég segi við tókum ekki færin okkar í dag og manni er refsað fyrir það."
„Þetta var náttúrulega eitthverjir 12, 13 metrar hérna hliðarvindur og mér fannst liðin bara gera það besta úr því í raun og veru. Við buðum alla vega upp á skemmtilegan leik bæði lið. Ég held að menn hafi bara skilið vel við þetta."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.






















