Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
   fim 08. ágúst 2019 22:23
Mist Rúnarsdóttir
Jakob Leó: Aldrei spurning í seinni
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst þetta mjög opinn leikur fyrsta hálftímann en við breyttum aðeins áherslum eftir þann tíma. Eftir það fannst mér við heilt yfir vera með leikinn. Við fengum stöður til þess að skapa fleiri góð færi og fyrir vikið hefðum við getað skorað fleiri mörk,“ sagði Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka, eftir 2-0 sigur á Augnablik í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 2 -  0 Augnablik

„Ég get viðurkennt það að ég var ekki rólegur í fyrri hálfleik. Mér fannst leikurinn það opinn. En í seinni var þetta aldrei spurning.“

Haukar léku manni fleiri síðasta hálftíma leiksins eftir að Telmu Ívarsdóttur, markverði Augnabliks, var vikið af velli. Jakobi Leó fannst dómarinn hafa metið það atvik rétt.

Í Inkasso-deild kvenna mega liðin gera 5 skiptingar og það voru 10 skiptingar gerðar í síðari hálfleik í leiknum. Það hægði mjög á honum en að sama skapi fengu margir ungir leikmenn tækifæri. Við spurðum Jakob Leó út í þessar 5 skiptinga reglur.

„Mér finnst það fínt. Sem þjálfari viltu geta dreift spiltíma á hópinn þinn. Menn geta náttúrulega nýtt sér þetta á neikvæðan hátt. Látið leiki deyja út með því að taka eina og eina skiptingu í einu,“ svaraði Jakob Leó og bætti við að honum fyndist þjálfarar í deildinni fara vel með regluna. Það mætti þó skoða að útfæra hana öðruvísi.

Nánar er rætt við Jakob Leó í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner