Man Utd hefur rætt við Mbeumo - Newcastle vill Delap og Pedro - Chelsea hefur rætt um Ekitike
   þri 27. maí 2025 16:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Baldvin Borgars í fjögurra leikja bann og Árbær fær háa sekt - Fimm í bann í Bestu
Baldvin hegðaði sér mjög ósæmilega í og eftir leik Árbæjar gegn Magna.
Baldvin hegðaði sér mjög ósæmilega í og eftir leik Árbæjar gegn Magna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliði Blika í banni á fimmtudag.
Fyrirliði Blika í banni á fimmtudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikmenn og einn þjálfari í Bestu deildinni hafa verið úrskurðaðir í eins leiks bann og verða því ekki í eldlínunni þegar níunda umferðin fer fram á fimmtudag. Þá hefur Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar í 3. deildinni, verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann fyrir ofsalega framkomu í leiknum - og atvik eftir leik Árbæjar og Magna síðasta laugardag.

Baldvin fékk að líta rauða spjaldið í leiknum og á upptöku heyrist hann spyrja hvort dómarar leiksins séu í alvörunni þroskaheftir og sagðist í „alvörunni langa að lemja" dómara leiksins. Hann hegðaði sér svo aftur mjög ósæmilega eftir leikinn. Árbær fær 70 þúsund króna sekt vegna brottrekstrarins og atviksins eftir leikinn. Árbær fær þá 15 þúsund krónur til viðbótar í sekt vegna níu refsistiga en Baldur Páll Sævarsson, leikmaður liðsins, fékk sömuleiðis að líta rauða spjaldið í leiknum.

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, verður í banni gegn ÍA. Hann fékk að líta sitt fjórða gula spjald í sumar í lok leiksins gegn FH þegar hann lét Ahmad Faqa, leikmann FH, heyra það og greip í treyju hans eftir að Faqa hafði fagnað í andlit Kristins Steindórssonar, liðsfélaga Höskulds.

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, verður í banni gegn Breiðabliki þar sem hann fékk að líta tvö gul spjöld í leiknum gegn Víkingi síðasta laugardag. Hann fékk rautt eftir að hafa sparkað í vatnsbrúsa í óánægju sinni með dómgæsluna.

Arnór Ingi Kristinsson, leikmaður ÍBV, hefur fengið fjögur gul spjöld í sumar og verður í banni gegn FH á fimmtudaginn.

Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR, verður í leikbanni gegn Stjörnunni eftir að hafa fengið tvö gul spjöld gegn Fram síðasta föstudag.

Kjartan Már Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, verður í banni gegn KR þar sem hann fékk sitt fjórða gula spjald í sumar í leiknum gegn Vestra á laugardag.

Bjarni Þór Hafstein, leikmaður Fjölnis, fékk að líta rauða spjaldið gegn Völsungi síðasta laugardag og mun missa af leik Fjölnis gegn ÍR í 5. umferð Lengjudeildarinnar.

Níunda umferð Bestu deildarinnar
14:00 Vestri-Víkingur R. (Kerecisvöllurinn)
16:15 Afturelding-Valur (Malbikstöðin að Varmá)
16:15 ÍBV-FH (Þórsvöllur Vey)
16:15 Fram-KA (Lambhagavöllurinn)
16:15 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner