Elías Már Ómarsson var hetja Excelsior gegn VVV Venlo í hollensku úrvalsdeildinni á liðnum laugardegi.
Elías Már, sem kom til Excelsior frá Gautaborg í Svíþjóð í síðasta mánuði, skoraði á 20. mínútu það sem reyndist vera eina mark leiksins.
Markið var sérlega glæsilegt en hægt er að horfa á það í sjónvarpinu hér að ofan. Elías er hlaðinn lofi í staðarblöðunum og er markið m.a. kallað 'Maradonasolo'.
Þetta er fyrsta markið sem Elías Már skorar síðan hann kom til Excelsior.
Excelsior er komið upp í áttunda sæti hollensku deildarinnar með níu stig að sjö leikjum loknum.






















