Víkingar sýndu yfirburði gegn ÍBV í Pepsi Max-deildinni í kvöld og unnu mikilvægan sigur.
„Eyjamenn eru særð dýr og þau geta verið hættuleg. Við nálguðumst verkefnið fagmannlega og af yfirvegun. Liðið sýndi þroskamerki og við nálgumst Evrópusæti núna," segir Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.
„Eyjamenn eru særð dýr og þau geta verið hættuleg. Við nálguðumst verkefnið fagmannlega og af yfirvegun. Liðið sýndi þroskamerki og við nálgumst Evrópusæti núna," segir Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 1 ÍBV
Kári Árnason var djúpur á miðju í leiknum í dag.
„Okkur vantaði smá stál á miðjuna. Það þarf leiðtoga í hverri einustu línu. Ég er með leiðtoga í markinu og vörninni og það vantaði aðeins leiðtoga á miðjuna til að gera okkar ungu leikmönnum kleyft að njóta sín aðeins betur. Mér fannst það virka vel í dag. Kári með alla sína reynslu var mjög yfirvegaður og flottur. Við æfðum þetta mjög vel í aðdraganda leiksins og það kom inn ákefð í okkar lið sem hefur vantað."
Óttar Magnús Karlsson var maður leiksins í dag en hann skoraði tvívegis.
„Þessi drengur er gæðaleikmaður og gefur okkur svo mikla möguleika. Hann kemur inn í þennan klúbb vel stemmdur úr atvinnumennskunni. Maður fann það strax í fyrsta símtali að hann er spenntur og hann er að gera gott lið enn betra."
Í viðtalinu talar Arnar einnig um bikarslaginn sem er framundan, undanúrslitaleikinn gegn Breiðabliki á fimmtudaginn.
Athugasemdir