Ákveðinn í að fá Haaland til Barcelona - City veitir Liverpool keppni um Guehi - Everton mun ekki hlusta á tilboð í Branthwaite
   þri 16. september 2025 15:10
Elvar Geir Magnússon
Isak í hóp á morgun - 100% að hann spilar ekki allan leikinn
Alexander Isak á æfingu með Liverpool.
Alexander Isak á æfingu með Liverpool.
Mynd: Liverpool FC
Sóknarmaðurinn Alexander Isak leikur líklega sinn fyrsta leik fyrir Liverpool annað kvöld, þegar liðið mætir Atletico Madrid í Meistaradeildinni.

Það var mikið fjaðrafok í kringum kaup Liverpool á Isak frá Newcastle og sænski landsliðsmaðurinn kostaði 125 milljónir punda.

Arne Slot, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Isak sé í hópnum fyrir leik morgundagsins. Um spiltíma Isak vildi Slot aðeins segja að hann muni 100% ekki spila allar 90 mínúturnar.

Van Dijk um Isak: Gæðin sáust strax á fyrstu æfingu
„Hann hefur litið mjög vel út á æfingasvæðinu og er gríðarlega ákveðinn. Gæðin sem hann býr yfir sáust strax á fyrstu æfingu. Hann hefur komið inn á þetta á mjög jákvæðan hátt og passar vel inn í hópinn," segir Virgil Van Dijk.

Hollenski fyrliðinn sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var spurður út í breiddina hjá Liverpool eftir komu Isak.

„Það er ekki hægt að kalla hann viðbót er það? Hann hefur komið í staðinn fyrir leikmenn sem hafa verið okkur svo mikilvægir og við notið velgengni með. Hann kemur með ákveðinn verðmiða en við höfum enga stjórn á því. Það verður alltaf talað um verðið og því fylgir pressa en við tölum ekki um það sjálfir."

„Hann hefur upp á allt að bjóða og getur skorað með ýmsum hætti. Þetta snýst um að hann leggi mikið á sig, njóti þess að vera sóknarmaður Liverpool, hjálpi öðrum og hjálpi liðinu með mörkum og stoðsendingum."
Athugasemdir
banner