Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
Fyrsta tap ÍR: „Helvíti gróft ef að eitt tap í tólf leikjum sitji þungt í mönnum"
Hemmi fékk góða afmælisgjöf: „Hún gat ekki verið betri"
Reynir Freyr: Gefur okkur mikið að fá Jón Daða
Gunnar Guðmunds: Við erum búnir að fá okkur alltof mörg mörk úr föstum leikatriðum
Árni Freyr: Andleysi leikmanna í hámarki
Jakob Gunnar spilaði sinn síðasta leik fyrir Þróttara: Vildi spila meira
Ingi Rafn: Fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur
Mark tekið af Keflavík vegna rangstöðu: „Bara óskiljanlegt"
Haraldur Hróðmars: Lífsnauðsynlegur sigur
Venni: Það gaf okkur blóð á tennurnar
Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
   mið 23. júní 2021 23:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Siggi Raggi: Gaman að sjá hlaupatölurnar hans Helga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var geggjaður leikur og ég er hrikalega stoltur af strákunum, hvernig þeir unnu þetta saman sem öflug liðsheild í dag," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigur á Breiðablik í framlengdum leik í Mjólkurbikarnum.

„Við erum að spila við eitt besta lið landsins og ég er gríðarlega stoltur af þeim. Við fögnum þessu og búum okkur undir næsta verkefni."

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  0 Breiðablik

Helgi Þór Jónsson skoraði fyrra mark Keflavíkur, markið sem kom þeim á bragðið. Í raun og veru óvænt hetja enda Helgi ekki oft í umræðunni.

„Það verður gaman að sjá hlaupatölurnar hjá Helga í þessum leik. Hann stóð sig frábærlega og setti hann. Allir í liðinu lögðu sig gríðarlega vel fram."

„Við höfum fengið gagnrýni á okkur fyrri part móts fyrir að fá á okkur mörg mörk, fjögur mörk í leik þrjá leiki í röð. Við höfðum eitthvað að sanna, að við gætum spilað betri varnarleik. Núna í síðustu þremur leikjum höfum við ekki fengið á okkur mark og unnið alla leikina."

Sigurinn í dag byggðist á varnarleik en hægt að horfa á allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner