„Þetta var ótrúlega svekkjandi. Sérstaklega í ljósi þess að fyrri hálfleikurinn var mjög góður,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Þórs/KA eftir 5-2 tap gegn Val í fyrstu umferð Íslandsmótsins.
Lestu um leikinn: Valur 5 - 2 Þór/KA
„Við áttum að skora tvö ef ekki þrjú mörk í viðbót og það var mjög svekkjandi að hafa ekki klárað það. Komnar framhjá markmanninum og allt,“ sagði Donni en Þór/KA-liðið var líklegra stóran part fyrri hálfleiks. Liðið missti dampinn svo algjörlega í síðari hálfleik.
„Seinni hálfleikur var hreint ömurlegur. Langlélegasti hálfleikur sem Þór/KA hefur spilað undir minni stjórn. Við vorum alltof langt frá mönnunum alls staðar og gerðum í raun allt sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Donni en þetta er annar leikurinn í röð þar sem leikur Þórs/KA hrynur í síðari hálfleik. Liðið fékk líka skell í seinni hálfleik gegn Blikum í Meistarakeppni KSÍ í síðustu viku.
„Þetta er klárlega áhyggjuefni og eitthvað sem ég þarf að hugsa um,“ sagði Donni en benti þó á að liðið hefði leikið aðra leiki á undirbúningstímabilinu þar sem spilamennskan hafi verið góð út allan leikinn. Til að mynda tvívegis gegn sterku liði Blika.
„Þetta var fyrsti leikur og við skulum ekki missa okkur. Við spilum við þær aftur heima og vinnum þær bara þá. Þá verður 3-3 í stigum og við skulum ekki fara á límingunum.“
Lið Þórs/KA er töluvert breytt frá síðustu leiktíð en liðið missti lykilmenn á borð við Söndru Maríu Jessen, Önnu Rakel Pétursdóttur, Ariana Calderone og Lillý Rut Hlynsdóttur.
„Við erum mjög ánægðir með liðið en þetta er fyrsti leikur sem þetta lið spilar saman. Andrea Mist kom bara fyrir 3-4 dögum og Iris lenti í morgun. Það þarf eðlilega aðeins að skerpa á hlutunum en það var nú ekki það sem var að. Það var varnarleikurinn og við fengum á okkur fimm mörk, annan leikinn í röð.“
„Við erum með hörkugott lið og höfum trú á því sem við erum að gera. Við getum klárlega verið í titilbaráttu. Fótbolti er einföld íþrótt og það er hægt að vinna alla leiki. Við stefnum á það hér eftir,“ sagði Donni að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í spilaranum hér að ofan.






















