Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   fös 21. maí 2021 20:51
Þorgeir Leó Gunnarsson
Magnús Már: Við áttum ekkert skilið í dag
0-5 tap á heimavelli
Lengjudeildin
Magnús Már þjálfari Aftureldingar
Magnús Már þjálfari Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding tók á móti ÍBV í 3.umferð Lengjudeildarinnar á Fagverksvellinum í Mosfellsbæ í dag. Heimamenn sáu aldei til sólar og þurftu á endanum að sætta sig við 0-5 tap. Magnús Már þjálfari liðsins var svekktur í leikslok.

„Rosalega margt sem klikkar. Eiginlega bara allt í okkar leik. Við vorum bara ekki on í dag. Allt önnur frammistaða en fyrir viku síðan þegar við unnum góðan sigur í Ólafsvík. Úrslitin eftir því og við áttum ekkert skilið í dag. Eyjamenn voru mjög öflugir og áttu sigurinn svo sannarlega skilið. Við þurfum bara að gera betur í næsta leik á móti Þór Akureyri" Sagði Magnús Már.

Afturelding hefur verið að styrkja sig með reynslumiklum leikmönnum síðustu vikur og léku þeir Pedro og Alberto báðir með liðinu í dag. Alberto fór meiddur af velli en meiðsli hans eru smávægileg. Magnús segist ánægður með leikmennina og hópinn í heild „Mjög reyndir og öflugir leikmenn báðir tveir og þeir munu styrkja okkur í framhaldinu. Við erum með mjög breiðan og góðan hóp þannig það er mikil samkeppni um stöður og það er gott. Jákvætt að hafa heilbrigða samkeppni og liðsandinn er góður. Við verðum klárir eftir viku" Sagði Magnús Már.

Nánar er rætt við Magnús í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir