Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   lau 26. júní 2021 16:51
Unnar Jóhannsson
Laugi: Reikna ekki með breytingum á hópnum í glugganum
Þróttarar sitja sem fastast í fallsæti í Lengjudeildinni
Lengjudeildin
Það er verðugt verkefni framundan hjá Guðlaugi og hans mönnum í Laugardalnum
Það er verðugt verkefni framundan hjá Guðlaugi og hans mönnum í Laugardalnum
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Guðlaugur Baldursson þjálfari Þróttar var skiljanlega ekki sáttur eftir 1-3 tap sinna manna gegn Aftureldingu í dag.

„Svekktur með okkur í fyrri hálfleik, við vorum slakir. Þar töpum við leiknum. Seinni hálfleikurinn var skárri smá líf í okkur.'' voru fyrstu viðbrögð Guðlaugs eftir leik.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  3 Afturelding

Þróttarar pressuðu vel á Aftureldingu fyrstu 10 mínútur leiksins.
„Já og það gekk ágætlega, en svo fannst mér við bakka út úr því og það vantaði að halda því áfram.''

Laugi gerði tvær breytingar á liði sínu í hálfleik, tók Hrein Inga og Andi Hoti útaf.
„Við vildum breyta aðeins um og skoða aðra möguleika og það gekk ágætlega, þeir stóðu sig ágætlega sem komu inn og við stóðum okkur betur í seinni hálfleik en það var ekki nóg.''

„Nei ég reikna ekki með því.'' sagði Guðlaugur þegar hann var spurður út í breytingar á hópnum í félagsskiptaglugganum sem fer að opnast.

Næsti leikur hjá Þrótturum er í Ólafsvík þar sem tvö neðstu lið deildarinnar mætast.
„Það verður alvöru slagur, við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að sýna betri frammistöðu í 90 mínútur heldur en við gerðum hér í dag.''

Nánar er spjallað við Guðlaug í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner