Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   þri 07. september 2021 21:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KH upp í 3. deild: Ég bara trúi þessu ekki
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KH sigraði Vængi Júpíters með tveimur mörkum gegn engu í úrslitakeppni fjórðu deildar í kvöld. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í 3. deild á næstu leiktíð.

Sturla Ármannsson skoraði síðara mark mark KH en Fótbolti.net var á staðnum og fékk hann í viðtal eftir leikinn.

„Mér líður frábærlega, þetta er búið að vera langt tímabil, Covid pása, heimaæfingarnar, bara geggjað. Búið að vinna fyrir þessu í allan vetur og ég bara trúi þessu ekki."

Hann sagði að það hafi nánast allt gengið upp hjá þeim í kvöld.

„Við ætluðum að pressa þá í byrjun og skora mark, þetta annað mark nokkurn vegin tryggði þetta, við hefðum geta skorað þrjú eða fjögur."

Það var skýrt markmið fyrir mót að fara upp.

„Algjörlega. Erum með geggjaðan hóp, menn á bekknum sem gætu verið að byrja nánast í öllum liðum í fjórðu deildinni, allan tíman að fara upp, það var ekkert annað í boði."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan
Athugasemdir