Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
Venni: Ég get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   þri 24. maí 2022 22:29
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Sandra: Óska mótherjum okkar bara góðs gengis að verjast henni
Kvenaboltinn
Sandra varði vítaspyrnu í lok leiks
Sandra varði vítaspyrnu í lok leiks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra Sigurðardóttir, markvörður Vals sagði tilfinninguna vera mjög góða eftir 1-0 sigur á Breiðablik í kvöld.

„Þetta er náttúrulega klárlega það sem við ætluðum, að ná í 3 stig. Það er alltaf erfitt að koma á Kópavogsvöll og þetta var bara hörkuleikur og ég er bara mjög sátt," sagði Sandra strax eftir leik.


Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  1 Valur

Það var nóg að gera hjá Söndru í dag, en hún varði nokkrum sinnum gríðarlega vel og kórónaði leik sinn með því að verja vítaspyrnu á 83. mínútu.

„Maður tekur svolítið sénsinn, reynir að lesa spyrnumanninn og það tókst bara vel í dag og ég er bara ótrúlega ánægð með það."

Miðvörðurinn Arna Sif skoraði sigurmark leiksins eftir hornspyrnu, en hún hefur verið drjúg fyrir Valskonur í hornspyrnum í sumar.

„Þetta er bara geggjað sko, ótrúlega sátt með hana og óska mótherjum okkar bara góðs gengis að verjast henni af því að hún er náttúrulega bara algjört naut sko og bara ótrúlega góð í þessu, þær báðar, líka Mist og svo erum við með fleiri góða skallamenn sko. Þannig þetta er alveg vopn, alveg klárlega," sagði Sandra.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan.


Athugasemdir
banner