Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. mars 2020 13:49
Magnús Már Einarsson
Víkingur R. hættir við æfingaferð sína til Spánar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. hefur hætt við æfingaferð sína til Spánar en liðið átti að fara til Oliva Nova á laugardag.

Víkingar taka þessa ákvörðun vegna kórónu veirunnar.

Fleiri íslensk félög hafa hætt við að fara út en það eru karlalið ÍA og Sindra sem og kvennalið Selfoss.

Kvennalið KR og karlalið Leiknis og Víkings Ó. eru meðal liða sem líkleg eru til að hætta við samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

KA og Valur ætluðu að fara til Bandaríkjanna en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur lagt bann við ferðum Íslendinga til Bandaríkjanna.

Sjá einnig:
Íslensk félagslið að hætta við æfingaferðir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner