Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 15. maí 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Augsburg að ganga frá kaupum á Reece Oxford
Mynd: Getty Images
Sky Sports heldur því fram að West Ham sé búið að samþykkja tilboð frá Augsburg í varnarmanninn efnilega Reece Oxford.

Augsburg greiðir 3 milljónir punda fyrir ungstirnið en sú upphæð gæti orðið talsvert hærri ef Oxford þroskast í gæðamikinn leikmann.

Oxford er tvítugur miðvörður sem hefur verið hjá Augsburg að láni á tímabilinu. Hann hefur ekki fengið mikinn spiltíma en þjálfarar félagsins eru afar hrifnir af honum.

„Hann hefur gæðin til að verða að frábærum leikmanni en við megum hins vegar ekki eyða of miklum pening," sagði Martin Schmidt, þjálfari Augsburg, við Kicker.

Oxford hefur verið mikið í Þýskalandi síðustu ár en á síðasta tímabili var hann hjá Borussia Mönchengladbach að láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner