Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 16. október 2020 11:29
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace reynir að fá Butland
Mynd: Getty Images
Crystal Palace er í viðræðum um að fá markvörðinn Jack Butland í sínar raðir frá Stoke.

Butland var á sínum tíma talinn vera framtíðar landsliðsmarkvörður hjá Englandi en hann lék sína fyrstu landsleiki þegar Roy Hodgson, núverandi stjóri Crystal Palace, var landsliðsþjálfari.

Butland hefur ekki náð að fylgja væntingum eftir með Stoke undanfarin ár.

Þessi 27 ára gamli markvörður er á lokaári á samningi en hann hefur ekkert spilað á tímabilinu og Stoke vill selja hann.

Ef Crystal Palace nær ekki að landa Butland þá gæti félagið reynt að fá Dillon Phillips frá Charlton en Hodgson vill fá markvörð til að berjast við stöðuna um Vicente Guatia.
Athugasemdir
banner
banner
banner