Veggur í viðræðum Man Utd um Mbeumo - Chelsea vill Rogers - Ekitike og Isak sápuóperan heldur áfram
banner
   fim 17. júlí 2025 12:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona verða 8-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins
Grótta mætir Hetti/Hugin.
Grótta mætir Hetti/Hugin.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda, eru að baki og núna er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum keppninnar.

Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, sá um að draga heimaliðin og það er óhætt að segja að landsbyggðin geti verið honum þakklát því allir leikirnir fjórir fara fram úti á landi.

8-liða úrslitin verða spiluð þriðjudaginn 5. ágúst, undanúrslitin 20. september og úrslitaleikurinn verður á hybrid grasi Laugardalsvallar föstudagskvöldið 26. september.

Þetta er þriðja tímabilið sem þessi skemmtilega keppni, yngsta og sprækasta bikarkeppni landsins, fer fram. Víðir í Garði varð fyrst félaga til að lyfta bikarnum á Laugardalsvelli og í fyrra var það Selfoss sem fagnaði sigri gegn KFA í úrslitaleik.

Leikirnir í 8-liða úrslitunum:
Tindastóll - KFG
KFA - Víkingur Ó.
Kormákur/Hvöt - Ýmir
Höttur/Huginn - Grótta
12:04
Þá er þessu lokið
Þá er þessum drætti lokið. Landsbyggðin er ánægð en dómaranefndin er það ekki að sögn Birkis.

Þökkum samfylgdina!

Eyða Breyta
12:04
HÖTTUR/HUGINN - GRÓTTA
Þetta verður áhugaverður leikur!

Eyða Breyta
12:04
Síðasta heimaliðið er Höttur/Huginn.

Eyða Breyta
12:04
KORMÁKUR/HVÖT - ÝMIR
Ýmir fer á erfiðan útivöll.

Eyða Breyta
12:03
Kormákur/Hvöt bað um heimaleik í athugasemdakerfinu og þeir fá ósk sína uppfyllta.

Eyða Breyta
12:03
KFA - VÍKINGUR Ó.
Ólsarar fara austur.

Eyða Breyta
12:03
KFA fær heimaleik. Sölvi Haralds að gera landsbyggðinni greið.a

Eyða Breyta
12:02
TINDASTÓLL - KFG
Garðbæingar fara á Sauðárkrók.

Eyða Breyta
12:02
Tindastóll er fyrsta liðið upp úr pottinum og fær heimaleik.

Eyða Breyta
12:01
Sölvi Haralds dregur fyrir .net
Sá allra veikasti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Eyða Breyta
12:01
Birkir Sveinsson, hinn íslenski Marchetti, er mættur í mynd og heldur tölu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Eyða Breyta
12:00
Útsending var að hefjast á Instagram. Getið farið þangað yfir eða bara fylgst með hér. Drátturinn fer af stað eftir smástund.

Eyða Breyta
11:25
Í pottinum
2. deild: Grótta, KFA, Víkingur Ó, Kormákur/Hvöt, KFG, Höttur/Huginn

3. deild: Tindastóll, Ýmir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Eyða Breyta
11:21
Úrslitin úr 16-liða úrslitum:
Álftanes 4 - 7 Ýmir
1-0 Kári Tómas Hauksson ('3 , sjálfsmark)
2-0 Pálmar Sveinsson ('41 )
2-1 Björn Ingi Sigurðsson ('45 )
2-2 Andri Már Harðarson ('90 )
2-3 Baldvin Dagur Vigfússon ('98 )
2-4 Alexander Örn Guðmundsson ('100 )
2-5 Alexander Örn Guðmundsson ('102 )
2-6 Alexander Örn Guðmundsson ('109 )
2-7 Baldvin Dagur Vigfússon ('110 )
3-7 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('112 )
4-7 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('116 )
Lestu um leikinn

KFG 3 - 2 Ægir
1-0 Adrían Baarregaard Valencia ('3 )
2-0 Djordje Biberdzic ('46 , víti)
3-0 Adrían Baarregaard Valencia ('50 )
3-1 Aron Daníel Arnalds ('60 , víti)
3-2 Róbert Kolbeins Þórarinsson ('85 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn

Árbær 2 - 3 Kormákur/Hvöt
1-0 Brynjar Óli Axelsson ('6 )
1-1 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('7 )
1-2 Jón Gísli Stefánsson ('24 )
1-3 Sigurður Pétur Stefánsson ('45 )
2-3 Gunnþór Leó Gíslason ('63 )
Rautt spjald: Sergio Francisco Oulu, Kormákur/Hvöt ('70) Lestu um leikinn
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sigurður Pétur skoraði fyrir Kormák/Hvöt

Tindastóll 3 - 2 Þróttur V.
1-0 Svetislav Milosevic ('6 )
1-1 Sigurður Agnar Br. Arnþórsson ('64 )
2-1 Jóhann Daði Gíslason ('65 )
3-1 Arnar Ólafsson ('80 )
3-2 Franz Bergmann Heimisson ('85 )
Lestu um leikinn

Víkingur Ó. 3 - 1 Reynir S.
1-0 Asmer Begic ('27 )
1-1 Bergþór Ingi Smárason ('29 )
2-1 Ellert Gauti Heiðarsson ('79 )
3-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('90 )

KFA 3 - 0 Kári
1-0 Nikola Kristinn Stojanovic
2-0 Javier Montserrat
3-0 Hrafn Guðmundsson
Mynd: KFA

Nikola skoraði fyrir KFA

Grótta 3 - 0 KFS
1-0 Björgvin Stefánsson ('19 )
2-0 Caden Robert McLagan ('23 )
3-0 Björgvin Stefánsson ('37 )
Lestu um leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Björgvin Stefáns skoraði tvö fyrir Gróttu

KV 1 - 2 Höttur/Huginn
0-1 Árni Veigar Árnason ('16 )
0-2 Stefán Ómar Magnússon ('28 )
1-2 Samúel Már Kristinsson ('64 )
Rautt spjald: ,Sæbjörn Guðlaugsson , Höttur/Huginn ('87)Samúel Már Kristinsson , KV ('90)

Eyða Breyta
11:20
Heil og sæl!
Við hvetjum fólk til að fylgjast með í beinni á Instagram en einnig verður hægt að fylgjast með hér. Dregið verður rétt eftir klukkan 12.

Eyða Breyta
Athugasemdir
banner