Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
mánudagur 22. apríl
Besta-deild kvenna
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
laugardagur 20. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 20. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
lau 20.feb 2021 15:00 Mynd: Getty Images
Magazine image

Ian Burchnall - Englendingurinn ungi sem vildi taka við Íslandi

Ian Burchnall er 38 ára gamall Englendingur frá Leicester. Leikmannaferill hans var ekki merkilegur og hann viðurkennir það sjálfur. Þjálfaraferill hans er hins vegar mjög athyglisverður. Hann hefur unnið hörðum höndum að því að koma sér áfram í þjálfun og þegar tækifæri bauðst í Noregi fyrir um níu árum síðan hoppaði hann á það. Núna eftir ævintýri í Noregi og Svíþjóð er hann kominn aftur til Englands og er hann farinn að huga að næsta verkefni.

Burchnall var á meðal þeirra sem KSÍ ræddi við varðandi starf landsliðsþjálfara karla undir lok síðasta árs. Hann ræddi við Guðna Bergsson, formann KSÍ, en fékk ekki starfið í þetta sinn. Kannski einhvern tímann seinna. Guðni talaði jú um Burchnall sem mann framtíðarinnar.

Fréttamaður Fótbolti.net settist niður með Burchnall í gegnum Zoom fjarfundabúnað og ræddi við hann um þjálfaraferilinn til þessa, íslenska landsliðið og sitthvað fleira.

Burchnall var 29 ára þegar hann fékk tækifæri til að gerast aðstoðarþjálfari Sarpsborg í Noregi.
Burchnall var 29 ára þegar hann fékk tækifæri til að gerast aðstoðarþjálfari Sarpsborg í Noregi.
Mynd/Getty Images
Guðmundur Þórarinsson var á mála hjá Sarpsborg þegar Burchnall þjálfaði þar.
Guðmundur Þórarinsson var á mála hjá Sarpsborg þegar Burchnall þjálfaði þar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann segir að leikmannaferill sinn hafi ekki verið mjög merkilegur.
Hann segir að leikmannaferill sinn hafi ekki verið mjög merkilegur.
Mynd/Getty Images
Hann naut þess meira að þjálfa en að spila í utandeildunum á Englandi.
Hann naut þess meira að þjálfa en að spila í utandeildunum á Englandi.
Mynd/Getty Images
Brian Deane, fyrrum leikmaður Sheffield United, Leeds og Benfica fékk Burchnall til Sarpsborg.
Brian Deane, fyrrum leikmaður Sheffield United, Leeds og Benfica fékk Burchnall til Sarpsborg.
Mynd/Getty Images
'Ég var að þjálfa í akademíum og þetta var orðið svolítið 'Groundhog Day' hjá mér. Mér fannst ég þurfa að ýta á sjálfan mig til að komast upp á hærra stig'
'Ég var að þjálfa í akademíum og þetta var orðið svolítið 'Groundhog Day' hjá mér. Mér fannst ég þurfa að ýta á sjálfan mig til að komast upp á hærra stig'
Mynd/Getty Images
Stuðningsmenn Östersund héldu veislu fyrir Burchnall þegar hann yfirgaf félagið. Stuðningsmennirnir voru leiðir að sjá hann fara og það sama átti við þegar hann fór frá Viking.
Stuðningsmenn Östersund héldu veislu fyrir Burchnall þegar hann yfirgaf félagið. Stuðningsmennirnir voru leiðir að sjá hann fara og það sama átti við þegar hann fór frá Viking.
Mynd/Getty Images
Jón Daði Böðvarsson spilaði undir stjórn Burchnall í Viking.
Jón Daði Böðvarsson spilaði undir stjórn Burchnall í Viking.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Indriði Sigurðsson lék einnig hjá Burchnall í Viking.
Indriði Sigurðsson lék einnig hjá Burchnall í Viking.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Burchnall átti góðan fund með Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, um landsliðsþjálfarastarf Ísland. Guðni lýsti Burchnall sem manni framtíðarinnar.
Burchnall átti góðan fund með Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, um landsliðsþjálfarastarf Ísland. Guðni lýsti Burchnall sem manni framtíðarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég vona að þið komist á næsta HM, það væri gaman'
'Ég vona að þið komist á næsta HM, það væri gaman'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég hafði gaman að því að tala við þau og kannski verður eitthvað úr þessu seinna þegar ég verð búinn að öðlast enn meiri reynslu'
'Ég hafði gaman að því að tala við þau og kannski verður eitthvað úr þessu seinna þegar ég verð búinn að öðlast enn meiri reynslu'
Mynd/Getty Images
'Það er eitthvað sérstakt við hugarfarið þeirra og hvernig þeir leggja sig fram. Allavega hjá þeim sem ég hef unnið með og ég hef unnið með það mörgum að ég veit að þetta er engin tilviljun'
'Það er eitthvað sérstakt við hugarfarið þeirra og hvernig þeir leggja sig fram. Allavega hjá þeim sem ég hef unnið með og ég hef unnið með það mörgum að ég veit að þetta er engin tilviljun'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Burchnall er fluttur aftur til Englands og er farið að kitla í fingurna að snúa aftur í 'heita sætið'.
Burchnall er fluttur aftur til Englands og er farið að kitla í fingurna að snúa aftur í 'heita sætið'.
Mynd/Getty Images
Leicester er félagið sem Burchnall styður. Hann er gríðarlega ánægður með gengi mála hjá liðinu þessa stundina.
Leicester er félagið sem Burchnall styður. Hann er gríðarlega ánægður með gengi mála hjá liðinu þessa stundina.
Mynd/Getty Images
'Þú verður bara að hugsa um að standa þig vel á hverjum degi og það sem gerist eftir það, það gerist bara'
'Þú verður bara að hugsa um að standa þig vel á hverjum degi og það sem gerist eftir það, það gerist bara'
Mynd/Getty Images
Hvað næst fyrir þennan efnilega stjóra?
Hvað næst fyrir þennan efnilega stjóra?
Mynd/Getty Images
„Mjög gaman að koma til greina og mikill heiður fyrir mig"
Vann mörg störf í einu og hélt svo á vit ævintýranna
Burchnall byrjaði að þjálfa þegar hann stundaði nám við Háskólann í Leeds í Englandi. Hann lærði íþróttavísindi og þurfti starf til þess að geta borgað reikningana. Hann hafði samband við Leeds United og fékk starf þar við fótboltaþjálfun í samfélaginu.

„Ég byrjaði þar og ég lagði mikið á mig. Eftir ár eða svo var ég færður í akademíuna þar sem ég var að vinna með ungum krökkum. Ég var í fjögur ár í því og svo fór ég til Bradford City. Þetta þróaðist bara áfram. Ég var ekki endilega að hugsa um það þegar ég var 20 ára að ég yrði knattspyrnustjóri (e. manager), ég vildi bara starfa við fótbolta í fullu starfi. Ég fór í þetta með opnum huga og vann í gegnum þetta þannig," segir Burchnall sem tók að sér öll störf sem hann gat mögulega fengið til þess að geta bara hugsað um fótbolta, íþrótt sem hann elskar.

„Það er erfitt að lifa á því að þjálfa í grasrótarfótbolta. Ég ætlaði að gefa þessu nokkur ár í og sjá til hvort ég gæti borgað reikningana með því að taka öll störf sem ég gæti tekið að mér í þjálfun; þjálfa í grunnskólum, í frístundastarfi, í akademíum. Ég var líka að þjálfa í háskólanum mínum í sjö ár. Ég hugsaði með mér að ef ég myndi ekki leggja mjög mikið á mig þá myndi ég ekki geta lifað á þessu."

Svo kom tækifærið.

„Ég fékk starf aðstoðarþjálfara hjá Sarpsborg í Noregi þegar ég var 29 ára. Þá hugsaði ég með mér að ég væri búinn að vinna streitulaust í tíu ár og núna væri ég kominn á þann stað að ég gæti bara hugsað um eitt starf. Ég var búinn að vinna fimm eða sex störf í einu og núna var það bara eitt starf. Það var augnablik þar sem ég hugsaði að þetta væri í alvöru að gerast hjá mér."

Ekki þess virði að skrifa um leikmannaferilinn
Leikmannaferill Burchnall var ekki merkilegur og hann viðurkennir það sjálfur. Að þjálfa heillar hann meira en að spila.

„Það er ekki þess virði að skrifa um hann," segir Burchnall um leikmannaferil sinn. „Ég spilaði alltaf og var svona allt í lagi leikmaður. Ég spilaði í háskólaboltanum og örlítið í utandeildunum á Englandi. Ég hafði ekkert rosalega gaman að því að spila í utandeildunum. Ég hafði ekki gaman að því æfa og það var skemmtilegra að þjálfa."

„Ég hugsaði með mér: 'Hvað er ég að gera?' Að fara tvö, þrjú kvöld á viku að keyra í klukkutíma á æfingar þar sem ég hef ekki gaman að því. Ég vildi heldur njóta þess að þjálfa. Ég spila frekar í fimm manna bolta (e. Five-a-side) og einbeiti mér að því að þjálfa. Ég var aldrei frábær leikmaður en ég var alveg meðvitaður um það og þess vegna fór ég í háskóla til þess að fræðast meira um þjálfun."

Burchnall finnst skemmtilegra að þjálfa og aðspurður af hverju það sé þannig segir hann: „Það er það að vinna með mismunandi fólki og hjálpa því að bæta sig. Ég kann vel við ferlið að hjálpa fólki að bæta sig í einhverju."

„Það er líka það að púsla saman púslunum við að búa til lið, mér finnst áhugavert að vinna í liði. Ég veit ekki hvernig mér myndi finnast að þjálfa í einstaklingsíþrótt eins og til dæmis golf eða eitthvað. Mér finnst gaman að vinna í liði með mismunandi persónuleikum. Það er líka gaman að setja út mínar hugmyndir um fótbolta og sjá hvort þær virki."

Burchnall nefnir hugmyndir sínar um fótbolta. Hann vill að liðin sem hann þjálfi séu jákvæð í sinni nálgun.

„Þú getur byrjað að tala um að halda bolta og allt þannig, en fyrir mér snýst þetta mest um að búa til lið sem eru jákvæð í sinni nálgun, skapa lið sem eru hugrökk hvernig þau spila; leikmenn sem vilja hafa boltann og eru nægilega hugrakkir til að hafa boltann, gera mistök og þróa sinn leik. Ég vil liðin mín sóknarsinnuð, jákvæð og hugrökk. Þannig myndi ég lýsa því. Ef þú ert mikið með boltann frábært, en stundum þarf það ekki endilega að vera þannig."

Nútímaþjálfarar virðast alltaf huga meira og meira að greiningu, tölfræði og þess háttar. Til að mynda þá er xG mjög vinsælt umræðuefni núna. Til að skýra hugtakið á einfaldan hátt, þá mælir það hversu líklegt það er að lið skori miðað við gæði marktækifæris. Skot af 30 metrum skilar ekki miklu xG en dauðafæri við opið mark mun líklega gefa liði ansi hátt xG. Burchnall kveðst hugsa nokkuð um greiningu og þess háttar.

„Ég vil nota þetta til að styðja við þá hluti sem við erum að gera en ég myndi ekki segja að ég sé tölfræðinörd. Ég er ekki þannig en ég ég vil sjá hvort tölurnar styðja við það sem ég held," segir Englendingurinn ungi.

Mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum
Burchnall fór til Sarpsborg og var þar aðstoðarþjálfari. Hann var svo aðstoðarþjálfari Viking í Noregi og tók svo við sem aðalþjálfari þar. Hann tók við Östersund í Svíþjóð 2019 eftir að landi hans Graham Potter tók við Swansea. Potter stýrir nú Brighton í ensku úrvalsdeildinni, en Brighton er að spila mjög skemmtilegan fótbolta.

„Ég var að þjálfa í akademíum og þetta var orðið svolítið 'Groundhog Day' hjá mér. Mér fannst ég þurfa að ýta á sjálfan mig til að komast upp á hærra stig. Ég var ekki viss um að ég myndi fá reynsluna sem ég vildi og kannski þyrfti ég að fara erlendis. Ég var náinn Brian Deane, fyrrum fótboltamanni. Hann hjálpaði til við þjálfun í háskólanum þegar hann var að klára þjálfararéttindi sín."

„Svo fékk hann boð um starfið hjá Sarpsborg. Hann sá hvað ég hafði fram að færa sem þjálfari, ég var með eitthvað sem hann hafði ekki. Hann var með marga góða eiginleika frá því hann spilaði leikinn á meðan ég hafði tíu ára reynslu af því að þjálfa á æfingasvæðinu. Hann var ekki með þá reynslu og við hentuðum mjög vel saman."

„Ég fór út með honum og við vorum saman í tvö ár hjá Sarpsborg. Hann fór aftur heim til Englands en ég var áfram úti í Noregi. Þetta setur eitthvað öðruvísi á ferilskrána og þegar félög skoða ferilskrána mína þá hugsa þau kannski að þessi gaur er með öðruvísi reynslu og það ætti vonandi að vera jákvætt."

„í Noregi upplifði ég öðruvísi fótbolta. Fótboltinn þar er líklega vanmetinn, sérstaklega heima á Englandi. Þú verður að undirbúa lið fyrir Rosenborg, Molde og Brann sem eru mjög sterk lið með landsliðsmenn í sínum röðum, og þetta hjálpaði mér mjög mikið taktískt. Menningarlega var þetta ekki mikið stökk en það var gott að komast út úr þægindarrammanum," segir Burchnall sem hefur unnið með leikmönnum frá öllum heimshornum, þar á meðal frá Íslandi.

Burchnall var rekinn eftir eitt ár sem aðalþjálfari hjá Viking en starfið var mjög erfitt vegna fjárhagsvandamála hjá félaginu. Stuðningmennirnir dýrkuðu hann og mótmæltu brottrekstrinum. Það gerðist það sama hjá Östersund og héldu stuðningsmennirnir veislu fyrir hann áður en hann fór.

„Stuðningsmenn Viking gerðu það sama þótt ég hefði verið rekinn! Ég var þar í þrjú ár og síðasta árið var mjög erfitt. Það snerist aðallega um vandamál utan vallar hjá félaginu og ég held að stuðningsmennirnir hafi fundið til með mér. Það var veisla og þeir gáfu mér gjafir. Það var sama hjá Östersund. Það var mjög indælt. Þú vinnur og tapar, en þegar þú ferð þá færðu að vita hvað fólki finnst um þig. Þú hugsar með þér að þú hafir gert vel og fólk hafi kunnað að meta það. Stuðningsmennirnir hafa verið frábærir hjá þeim félögum sem ég hef verið hjá."

Burchnall náði flottum árangri með Östersund. Á fyrsta tímabili hans endaði liðið í sjötta sæti og var liðið einu stigi frá því að jafna stigamet sem hafði verið sett tímabili áður undir stjórn Potter. Sumarið 2020 steig hann til hliðar til þess að flytja aftur til Englands með fjölskyldu sinni. Var erfitt að loka þessum átta ára kafla?

„Já og nei. Ég kaus að fara frá Sarpsborg þar sem ég var með tilboð frá öðru félagi. Það var frekar erfitt því við áttum marga vini þar og ég mér fannst félagið frábært. Það var mikið að breytast þar og mér fannst það rétti tíminn til að fara. Hjá Viking var það ekki mitt val, ég var rekinn. Það er eðlilegt í fótbolta; þrjú ár og þú ert farinn. Við elskuðum Stavanger og vildum ekki fara. Það var erfitt. Hjá Östersund var ég tilbúinn að fara út af fjölskylduástæðum. Heilt yfir var það rétt ákvörðun," segir Burchnall sem er núna að leita að næsta verkefni.

Vildi taka við íslenska landsliðinu
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, greindi frá því í síðasta mánuði að hann hefði rætt við Lars Lagerback, Ståle Solbakken og Äge Hareide um að taka við landsliðinu. Hann sagði einnig að hann hefði rætt við Burchnall.

Englendingurinn sendi ferilskrá sína til KSÍ og átti góðan fund með Guðna og KSÍ.

„Ég sendi ferilskrána mína á íslenska knattspyrnusambandið. Ég vissi ekki hverju ég ætti að búast við til baka því í mínum augum og í Englandi er íslenska landsliðið með frekar stórt orðspor eftir einn sérstakan leik fyrir mörgum árum," sagði Burchnall og átti þar auðvitað við leikinn fræga 2016 þegar Ísland sló England úr leik á Evrópumótinu. „Þetta er stórt starf að mínu mati."

„Ég fékk mjög gott svar til baka frá Guðna (Bergssyni). Hann bað mig að koma á vídjófund og ég gerði það. Við töluðum lengi saman og ég verð að segja að ég var mjög, mjög hrifinn af bæði Guðna og sýn sambandsins. Hann sagði mér hvernig fótboltinn væri á Íslandi og ég hafði mjög mikinn áhuga á að taka þátt í þessu en mér finnst Arnar Þór Viðarsson frábær kostur. Hann og Eiður Smári gerðu stórkostlega hluti með U21 landsliðið. Það eru efnilegir leikmenn að koma upp og mér finnst það góð ákvörðun að ráða Arnar. Það er líka gott að Lars Lagerback komi inn með sína reynslu úr landsliðinu."

„Það var mjög gaman að koma til greina og það var mikill heiður fyrir mig. Ég hafði gaman að því að tala við þau og kannski verður eitthvað úr þessu seinna þegar ég verð búinn að öðlast enn meiri reynslu."


Burchnall mun fylgjast vel með íslenska landsliðinu. „Ég ætla að fylgjast með og horfa á leikina. Ég vona að þið komist á næsta HM, það væri gaman," sagði hann en undankeppni HM hefst í næsta mánuði. Þar er Ísland í riðli með Þýskalandi, Rúmeníu, Norður-Makedóníu, Armeníu og Liechtenstein.

„Þýskaland er þarna sem er ekki auðvelt. Hin liðin sem eru í riðlinum, það er mögulegt að hafa betur gegn þeim. Þetta er gott tækifæri til að komast áfram en það er aldrei auðvelt í landsliðsboltanum."

Hugarfar íslenskra leikmanna engin tilviljun
Burchnall hefur unnið með mörgum íslenskum leikmönnum og finnst honum einstaklega skemmtilegt að vinna með þeim.

„Ég hef unnið með mörgum Íslendingum í gegnum tíðina og gæti líklega stillt upp í heilt byrjunarlið bara með íslenskum leikmönnum sem ég hef unnið með. Ég þekki nokkra í landsliðinu og hef alltaf haft gaman að því að vinna með íslenskum fótboltamönnum."

„Það er eitthvað sérstakt við hugarfarið þeirra og hvernig þeir leggja sig fram. Allavega hjá þeim sem ég hef unnið með og ég hef unnið með það mörgum að ég veit að þetta er engin tilviljun. Það var annað sem mér þótti heillandi við landsliðið, að vinna með leikmönnum með svona gott hugarfar."

Hvað næst og draumastarfið
Það eru núna nokkrir mánuðir síðan Burchnall yfirgaf Östersund og er hann fluttur aftur heim til Englands ásamt fjölskyldu sinni.

„Við erum búin að kaupa hús hér og börnin eru byrjuð í skólanum. Við erum búin að vera á ferðalagi í Skandinavíu í átta ár og eigum börn sem eru fædd erlendis. Okkur fannst vera kominn tími á að koma aftur heim. Fyrsta forgangsatriði var að koma okkur fyrir. Annars hef ég verið að tala við félög, tala við aðra þjálfara og fara yfir síðustu ár til að undirbúa mig fyrir næsta starf. Það er fínt að fá frí en ég er kominn á þann stað núna þar sem ég er búinn að gera allt sem ég þurfti að gera, og núna þarf ég að byrja að vinna aftur. Ég er kominn aftur á þann stað en það er gott stundum að taka sér frí, líta til baka og fara yfir það sem hefur gerst."

Hann útilokar ekki að vinna aftur utan Englands ef eitthvað mjög spennandi kemur upp en eiginkona hans vill nú helst að hann vinni sér starf nálægt nýju heimili þeirra.

„Fjölskyldan vill vera á sama stað núna því við höfum verið á svo miklu ferðalagi. Ég á þrjú börn og þau hafa öll fæðst í mismunandi borgum, og í mismunandi löndum. Konan mín segir þér að mitt draumastarf sé í akstursfjarlægð frá þeim stað sem við erum núna á, en ef það kemur eitthvað áhugavert upp í útlöndum þá þarf ég kannski að skoða það og finna lausnir."

Hann er ekki með skýrt plan fyrir feril sinn, það sé því erfitt því það sé best að einbeita sér að hverju verkefni fyrir sig. „Ég vil ekki fara inn í mitt næsta félag, segjum að það sé félag á Englandi, og hugsa að ef ég stend mig vel hérna þá get ég farið þangað. Þú verður bara að hugsa um að standa þig vel á hverjum degi og það sem gerist eftir það, það gerist bara."

„Ég er að einbeita mér að því að komast í nýtt hlutverk núna og ég hef talað við nokkur félög á Englandi og hef fengið nokkur tilboð frá Skandinavíu, en ekkert fannst mér rétt á þeim tíma. Það er erfitt núna þar sem reksturinn gengur ekki mjög vel hjá mörgum félögum. Ég verð að velja eitthvað sem hentar mér."

Það fór ekki langur umhugsunartími í svar þegar hann var spurður út í draumastarfið að lokum. „Ég er stuðningsmaður Leicester og það er mitt félag."

„Faðir minn heldur með því og við fórum á marga leiki saman í mörg ár. Leicester er mitt félag og ef ég mætti velja eitthvað starf, þá myndi það vera hjá því félagi. Það eiga allir sitt lið og þetta er mitt lið. Ég er nokkrum árum frá því og Brendan (Rodgers) er að standa sig algjörlega frábærlega núna."

„Hins vegar ef ég myndi taka það starf að mér og ef það myndi ekki ganga vel þá myndi ég örugglega tapa nokkrum vinum og nokkrum fjölskyldumeðlimum."

Fyrir aðra sem vilja feta í fótspor Burchnall með því að koma sér áfram í þjálfun án þess að hafa stórt nafn í fótboltaheiminum, þá leggur hann til að reyna að sækja eins mikla þekkingu hjá öðrum þjálfurum og hægt er, að horfa á aðra þjálfara og sjá hvernig þeir gera hlutina og prófa sig áfram í að greina lið, leikmenn og leiki.

„Ég myndi líka segja, ekki flýta þér. Þú þarft ekki að vera á þeim stað sem þú stefnir á að komast á strax á morgun. Að læra er mjög gott. Þú vilt vera tilbúinn og þú getur aðeins verið það með því að æfa þig mikið," segir Ian Burchnall, maður framtíðarinnar.
Athugasemdir
banner
banner