banner
föstudagur 29. mars
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
föstudagur 29. mars
Engin úrslit úr leikjum í dag
banner
þri 26.jan 2021 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Af parketinu í Torfnesi á eitt stærsta svið Evrópu - „Var alltaf rosalega feimin"

Guðrún Arnardóttir hefur undanfarin tvö tímabil leikið í Svíþjóð með Djurgården sem atvinnukona. Áður hafði hún leikið með Breiðabliki í sjö tímabil en fyrstu skrefin í meistaraflokki tók hún með Selfossi.

Hún hafði félagaskipti úr BÍ í Selfoss árið 2009 og vakti það ákveðnar spurningar hjá spyrjanda. Hver er fótboltasaga Guðrúnar áður en hún kemur í Breiðablik árið 2012? Hér að neðan svarar Guðrún þeirri spurningu ásamt mörgum öðrum.

Ég byrjaði að æfa fótbolta þar af því besta vinkona mín byrjaði að æfa og ég nennti ekki að bíða eftir henni, svo ég byrjaði bara líka.
Ég byrjaði að æfa fótbolta þar af því besta vinkona mín byrjaði að æfa og ég nennti ekki að bíða eftir henni, svo ég byrjaði bara líka.
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Lærir maður rosalega mikið af mótlætinu.
Lærir maður rosalega mikið af mótlætinu.
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Síðan hlupum við, við hlupum alveg helling.
Síðan hlupum við, við hlupum alveg helling.
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Þá var ég búin að æfa smá 'strikerinn' og átti að henda mér upp á topp
Þá var ég búin að æfa smá 'strikerinn' og átti að henda mér upp á topp
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Græna treyjan var komin á og ég vissi ekki hvað ég væri að fara að hafa það gott í Breiðablik í öll þessi ár!
Græna treyjan var komin á og ég vissi ekki hvað ég væri að fara að hafa það gott í Breiðablik í öll þessi ár!
Mynd/Fotbolti.net - Anna Þonn
Á endanum ákvað ég einfaldlega að velja liðið þar sem mér leið best hjá.
Á endanum ákvað ég einfaldlega að velja liðið þar sem mér leið best hjá.
Mynd/Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Það var ótrúlega gott sumar og geggjaður andi í og í kringum liðið
Það var ótrúlega gott sumar og geggjaður andi í og í kringum liðið
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er hugsað um mann eins og atvinnumann, toppaðstæður og ótrulega skemmtilegt umhverfi.
Það er hugsað um mann eins og atvinnumann, toppaðstæður og ótrulega skemmtilegt umhverfi.
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Í gegnum tíðina hef ég ekki verið mjög hrifin af breytingum
Í gegnum tíðina hef ég ekki verið mjög hrifin af breytingum
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Ég æfði með strákunum á Flúðum en um sumarið fór ég vestur til pabba og spilaði með BÍ.
Ég æfði með strákunum á Flúðum en um sumarið fór ég vestur til pabba og spilaði með BÍ.
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Hún átti náttúrulega klikkaðslega gott ár í Noregi og er búin að vinna vel fyrir öllum sínum afrekum!
Hún átti náttúrulega klikkaðslega gott ár í Noregi og er búin að vinna vel fyrir öllum sínum afrekum!
Mynd/Johan Sahlén/Djurgarden
Gugga er náttúrulega algjör drottning, hún hefur verið lengi í Djurgården. Hún er goðsögn innan félagsins og leiðinlegt að sjá hana fara frá félaginu
Gugga er náttúrulega algjör drottning, hún hefur verið lengi í Djurgården. Hún er goðsögn innan félagsins og leiðinlegt að sjá hana fara frá félaginu
Mynd/Axel Bengtsson/Djurgarden
Mig langaði að verða einn af bestu leikmönnum liðsins og vonaðist til að vinna mig aftur í landsliðið.
Mig langaði að verða einn af bestu leikmönnum liðsins og vonaðist til að vinna mig aftur í landsliðið.
Mynd/Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Ég hafði átt gott sumar og þurfti nú að taka ákvörðun um hvort ég vildi leita mér að vinnu á Íslandi eða taka næsta skref í fótboltanum.
Ég hafði átt gott sumar og þurfti nú að taka ákvörðun um hvort ég vildi leita mér að vinnu á Íslandi eða taka næsta skref í fótboltanum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir að ég útskrifast kem ég heim og við vinnum tvöfallt með Breiðablik
Eftir að ég útskrifast kem ég heim og við vinnum tvöfallt með Breiðablik
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðan eftir það verð ég bara að skoða hvort ég verði áfram eða prófi eitthvað nýtt.
Síðan eftir það verð ég bara að skoða hvort ég verði áfram eða prófi eitthvað nýtt.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Titlarnir voru hápunktarnir inná vellinum ásamt stelpunum og fólkinu í kringum Breiðablik sem gerði öll þessi ár í grænu treyjunni svona skemmtileg.
Titlarnir voru hápunktarnir inná vellinum ásamt stelpunum og fólkinu í kringum Breiðablik sem gerði öll þessi ár í grænu treyjunni svona skemmtileg.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Eftir að hafa unnið þann leik þá vorum við orðnar meistarar.
Eftir að hafa unnið þann leik þá vorum við orðnar meistarar.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrstu titlarnir með Blikum voru ótrúlega sérstakir og Íslandsmeistaratitillinn 2015 þá sérstaklega.
Fyrstu titlarnir með Blikum voru ótrúlega sérstakir og Íslandsmeistaratitillinn 2015 þá sérstaklega.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Því mun ég líklegast aldrei gleyma og fögnuðinum með stuðningsmönnum.
Því mun ég líklegast aldrei gleyma og fögnuðinum með stuðningsmönnum.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Óttinn snéri að því að vera ný, vera kannski ekki nógu góð og þekkja engan."
Nennti ekki að bíða eftir vinkonu sinni
Hver er tenging Guðrúnar vestur og hvernig kom það til að hún hóf að æfa fótbolta?

„Þegar ég var fimm ára fluttum við aftur vestur, í Hnífsdal, og bjó ég þar þangað til 2007. Ég fæddist á Ísafirði en fjölskyldan flutti mjög fljótlega eftir að ég fæddist til Danmerkur," sagði Guðrún.

„Amma og afi búa fyrir vestan og báðar ættir eiga rætur að rekja þangað. Pabbi á enn íbúð fyrir vestan þannig hann kíkir óspart þangað en ég er ekki jafn dugleg, enda alltaf á fullu í boltanum!"

„Ég byrjaði að æfa fótbolta þar af því besta vinkona mín byrjaði að æfa og ég nennti ekki að bíða eftir henni, svo ég byrjaði bara líka. Þá vorum við alltaf inni á parketinu í Torfnesi og svo á gervigrasinu á sumrin. Það var fullt af stelpum að æfa og bara góðar minningar af þeim tíma."


Æfði með strákunum á Flúðum
Hvernig kemur til að Guðrún byrjar meistaraflokksferilinn á Selfossi?

„Í gegnum tíðina hef ég ekki verið mjög hrifin af breytingum en mamma ákvað að flytja hinu megin á landið, í Skeiða- og Gnúpverjahrepp, árið 2007. Ég æfði með strákunum á Flúðum en um sumarið fór ég vestur til pabba og spilaði með BÍ. Eftir það tók ég sumar þar sem ég spilaði með strákunum í sveitinni. Þjálfarinn á Flúðum var með sambönd á Selfossi og hvatti mig alltaf til að fara á Selfoss að æfa með stelpunum þar."

„Árið 2009 næ ég loksins að byggja upp hugrekkið til þess að mæta á æfingar á Selfossi. Þar er tekið mjög vel á móti mér og allt í toppstandi."


Guðrún talar um að byggja upp hugrekki og talar einnig um að vera ekki mjög hrifin af breytingum. Tengdist óttinn óvissunni og breytingunum?

„Já, það má segja það. Óttinn snéri að því að vera ný, vera kannski ekki nógu góð og þekkja engan. Ég var alltaf rosalega feimin þegar ég fór á nýja staði eða í nýtt umhverfi og fannst smá erfitt að koma mér inn í hlutina. Þannig mér fannst það allt saman alltaf smá ógnvekjandi, sem það var svo ekkert þegar ég loksins lét verða af því," sagði Guðrún og hló. Svo hélt hún áfram:

„Svo þremur mánuðum eftir að ég byrjaði að æfa með Selfossi fór ég á fyrstu unglingalandsliðsæfingarnar mínar. Sumarið 2010 spila ég með þriðja flokki og endum við á að verða Íslandsmeistarar. Það var stórt fyrir mig sem hafði aldrei verið í svona sterku liðið eða barist um titil áður. Eftir þetta tóku meistaraflokks þjálfararnir eftir mér og tóku mig inn í meistaraflokk. Sumarið 2011 spilum við í 1. deildinni og vinnum okkur sæti í efstu deild."

„Gott að hafa prófað að spila með strákum"
Telur Guðrún það hafa gert henni gott að hafa æft með strákum þegar hún var á Flúðum?

„Strákar eru náttúrulega líffræðilega öðruvísi en stelpur, eru oft fljótari og sneggri. Auðvitað hjálpa þannig aðstæður manni að þróast. Annars sé ég þetta þannig að því fleira sem maður prófar, því meira lærir maður og því gott að hafa prófað að spila með strákum."

Leið best hjá Breiðabliki
Eftir að hafa komist upp með Selfossi var kominn tími á næsta skref hjá Guðrúnu og gekk hún í raðir Breiðabliks eftir tímabilið 2011. Af hverju valdi hún Breiðablik?

„Eftir sumarið 2011 var aftur kominn tími á mömmu að flytja og ég fylgdi aftur með. Við fluttum í Hafnarfjörð haustið 2011 svo ég fór að skoða lið á höfuðborgarsvæðinu. Ég var í sambandi við mörg lið og mætti á æfingar með þó nokkrum þeirra. Á endanum ákvað ég einfaldlega að velja liðið þar sem mér leið best hjá. Græna treyjan var komin á og ég vissi ekki hvað ég væri að fara að hafa það gott í Breiðablik í öll þessi ár!"

Hugsað um mann eins og atvinnumann
Guðrún fékk kost á því að halda til Bandaríkjanna í háskólanám meðfram því að spila fótbolta með liði Santa Clara. Leikmenn sem kjósa slíkt nám fórna oftast hluta af tímabilinu hér heima þar sem skólaárð hefst áður en tímabilinu lýkur á Íslandi.

„Árið 2016 ákvað ég að breyta til og fara út til Bandaríkjanna. Þar hafði ég það ótrulega gott og lærði nýja hluti og fékk nýja sýn á margt."

Guðrún sér ekki eftir því að hafa tekið þessa ákvörðun, eða hvað?

„Nei, ég sé alls ekki eftir því, geggjuð upplifun bæði innan og utan vallar! Það er hugsað um mann eins og atvinnumann, toppaðstæður og ótrulega skemmtilegt umhverfi. Ofan á það náði ég mér í BSc gráðu sem er risastór kostur."

Mun aldrei gleyma fögnuðinum á Akureyri
Guðrún segir einn af hápunktunum með Breiðabliki vera titilfögnuðurinn eftir sigur á Þór/KA á Þórsvelli. Það sé stund sem hún muni ekki gleyma.

„Titlarnir voru hápunktarnir inná vellinum ásamt stelpunum og fólkinu í kringum Breiðablik sem gerði öll þessi ár í grænu treyjunni svona skemmtileg. Ég verð líka að koma inn á stuðningsmennina. Það gleymist ekki árið 2015 þegar þeir komu til Akureyrar í leikinn gegn Þór/KA. Eftir að hafa unnið þann leik þá vorum við orðnar meistarar, því mun ég líklegast aldrei gleyma og fögnuðinum með stuðningsmönnum."

Vinna á Íslandi eða næsta skref í fótboltanum
Breiðablik varð tvisvar Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari á þeim árum sem Guðrún lék með liðinu. Árið 2018, sem var lokaár Guðrúnar hjá félaginu, tókst liðinu að vinna báða titlana. Næsta skref var til Djurgården, Guðrún segir frá þankaganginum á sínum tíma.

„Fyrstu titlarnir með Blikum voru ótrúlega sérstakir og Íslandsmeistaratitillinn 2015 þá sérstaklega. Eftir að ég útskrifast kem ég heim og við vinnum tvöfalt með Breiðablik. Það var ótrúlega gott sumar og geggjaður andi í og í kringum liðið. Steini (Þorsteinn Halldórsson) náttúrulega rugl góður þjálfari og kann að nýta hæfileikana sem hann hefur í leikmönnunum sínum."

„Á þessum punkti var ég búin að klára gráðuna og gat sagt upp samningnum mínum við Breiðablik. Ég hafði átt gott sumar og þurfti nú að taka ákvörðun um hvort ég vildi leita mér að vinnu á Íslandi eða taka næsta skref í fótboltanum. Ég fór því að skoða mig um og sjá hvaða mögleikar væru í boði. Það var áhugi frá einhverjum liðum í mismunandi löndum."


Guðrún hafði leikið með Ingibjörgu Sigurðardóttur hjá Breiðabliki, Ingibjörg hafði gengið í raðir Djurgården ári áður, hafði vera hennar hjá félaginu áhrif á val Guðrúnar?

„Við Ingibjörg vorum nú þegar vinkonur enda höfðum við spilað saman í Breiðabliki og unglingalandsliðunum og þegar Djurgården hafði áhuga þá heyrði ég í henni. Mér fannst sænska deildin mjög heillandi og Stokkhólmur sem borg líka. Það er náttúrulega alltaf gott að hafa einhvern í liðinu sem þú þekkir og getur kennt þér á hlutina. Ingibjörg hjálpaði mér mikið að komast inn í allt og svo bjó hún bara í íbúðinni við hliðina á minni og var rosalega gott að hafa hana."

Lærði rosalega mikið af mótlætinu
Tímabilið 2019 vfyrsta tímabilið hjá Guðrúnu í atvinnumennsku. Djurgården hélt sér uppi með naumindum og reyndist baráttustig gegn Pitea í næstsíðustu umferð vera stigið sem tryggði liðinu veru í efstu deild. Hvernig var þetta tímabil?

„Tímabilið 2019 var rosalega skrítið, það var margt ábótavant í þjálfuninni og liðið náði einhvern veginn aldrei almennilega saman. Mikið af flottum leikmönnum, yndislegum stelpum en við náðum ekki að smella saman. Ég byrja á að spila alla leiki í deildinni en okkur gekk ekki vel. Við fengum mörg mörk á okkur og spiluðum ekki vel. Ég var ekki að bæta mig neitt, sjáflstraustið orðið frekar lítið og ég ekki að standa mig eins og ég vildi. Þegar u.þ.b. þriðjungur var eftir af tímabilinu var ákveðið að láta þjálfarann fara og nýr þjálfari ráðinn."

„Þegar nýi þjálfarinn tók við fór ég á bekkinn og sat þar það sem eftir var af tímabilinu, þar með talið þegar við spiluðum mikilvæga leikinn á móti Piteå. Sú endurkoma var gríðarlega mikilvæg og vissum við á þeim tímapunkti að hvert einasta stig væri mikilvægt. Það reyndist svo vera stigið sem hélt okkur uppi, við héldum okkur uppi á markatölu."

„Þetta var í fyrsta skiptið sem ég hef verið í svona botnbaráttu og eins klisjukennt og það er þá lærir maður rosalega mikið af mótlætinu. Bæði varðandi það að vera sett á bekkinn og að vera í botnbaráttunni."


Djurgården tapaði gegn Gautaborg í undanúrslitum bikarsins þetta ár, sigurmark Gautaborgar kom í uppbótartíma framlengarinnar. Hversu súrt var það tap?

„Gríðarlega súrt. Tíu sekúndum fyrir lokaflautið skoruðu þær, líklega eitt mest svekkjandi tap sem ég hef upplifað. En þar sem bikarinn er spilaður að mestu leyti áður en deildin byrjar, þá var ég bjartsýn á að gengi okkar í deildinni myndi vera gott. En eins og ég sagði áður þá reyndist það tímabil vera frekar í flokknum yfir lærdómsríka tíma frekar en árangursríka tíma. "

Æfði sem framherji fyrir lokaleikinn
Djurgården var aftur í fallbaráttu á liðinni leiktíð. Nú var það sigur í lokaumferðinni sem hélt liðinu uppi.

„Á öðru tímabilinu hjá Djurgården, var allt annar fílingur í félaginu þrátt fyrir að stigalega séð hafi það verið svipað. Þjálfarinn sem hafði tekið við og sett mig á bekkinn á tímabilinu á undan var ennþá með liðið en ég ákvað samt sem áður að skrifa undir nýjan samning. Ég vissi að ég átti mikið inni og var staðráðin í að sanna mig fyrir honum og verða mikilvægur hluti af liðinu."

„Á fyrstu æfingunni árið 2020 erum við sex á æfingu. Við vorum varla með lið og það var ennþá verið að vinna í því fram að móti að fá inn nýja leikmenn. Við bókstaflega spiluðum þrjár gegn þremur á æfingum með sjúkraþjálfara eða þjálfara í marki fyrstu tvo mánuðina af undirbúningstímabilinu. Síðan hlupum við, við hlupum alveg helling. Þegar tímabilið loksins byrjaði þá vorum við sífellt að bæta okkar leik en við vorum í veseni með að skora mörk og það einkenndi svolitið tímabilið. Margir góðir leikir en fá mörk skoruð."


Var mikið stress undir lok tímabils?

„Ég ætla ekkert að ljúga því að undir lokin á tímabilinu hafi ekki verið stress í hópnum. Við töpuðum niður leiknum á móti Eskilstuna sem hefði getað tryggt okkur sæti í deildinni. Svo þegar við spilum við Umeå í næstsíðustu umferðinni vissum við að mikilvægast væri að tapa ekki, því þá væri þetta ekki lengur í okkar eigin höndum. Við gerðum jafntefli og vissum að nú þyrftum við að vinna síðasta leikinn á móti Uppsala."

„Við æfðum vel fyrir allar mögulegar aðstæður sem gætu komið upp. Sem dæmi ef við áttum að fara að elta mark, þá var ég búin að æfa smá 'strikerinn' og átti að henda mér upp á topp,"
sagði Guðrún og hló.

„Og ég er ekki að djóka. Ég æfði bæði í stöðu miðvarðar og sem fremsti leikmaður fyrir þann leik, það er í fyrsta sinn sem það hefur gerst."

Staðráðin í að bæta sig
Heilt yfir hvernig metur Guðrún þessi tvö ár í atvinnumennsku?

„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá var 2019 ekki gott ár fótboltalega. Sjálf var ég ekki góð en eftir frammistöðu mína með Breiðabliki 2018 var ég valin í landsliðið nokkrum sinnum í byrjun árs 2019. Þegar ég datt út úr liðinu hjá Djurgården ræddi ég við þjálfarann um þá hluti sem honum fannst ég þurfa að bæta. Mér fannst það allt góðir punktar hjá honum og ég var staðráðin í að bæta mig á þeim sviðum sem hann benti á auk þess að bæta formið, því maður getur aldrei verið í of góðu formi."

„Árið 2020 var ég einbeitt á að bæta mig og verða lykilmaður í liðinu. Mig langaði að verða einn af bestu leikmönnum liðsins og vonaðist til að vinna mig aftur í landsliðið."


Guðrún verður betur spurð út í landsliðið í seinni hluta viðtalsins sem birtur verður síðar í dag.

Önnur algjör drottning og hin vél inn á vellinum
Að íslensku liðsfélögunum, Ingibjörg lék með Guðrúnu árið 2019 en hjá félaginu var einnig markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir. Hvað getur Guðrún sagt um þær?

„Ingibjörg er náttúrulega toppleikmaður með gríðarlegt keppnisskap. Eins og ég sagði áður þá vorum við vinkonur áður en ég flutti til Stokkhólms og hún sá vel um að hjálpa mér að komast inn í allt. Stutt í glensið hjá henni en þegar hún er á vellinum þá er hún vél. Hún átti náttúrulega klikkaðslega gott ár í Noregi og er búin að vinna vel fyrir öllum sínum afrekum! Hún er þekkt fyrir mikið vinnuframlag, fyrir að gefa aldrei tommu eftir og minnast leikmenn og þjálfarar Djurgården þess ennþá."

„Guggu þekkti ég ekki áður en ég kom til Djurgården en þekki hana vel núna og hef endalaust gaman af henni og yndislegu fjölskyldu hennar. Gugga er náttúrulega algjör drottning, hún hefur verið lengi í Djurgården. Hún er goðsögn innan félagsins og leiðinlegt að sjá hana fara frá félaginu. Það verður samt sem áður gaman að fylgjast með henni í Noregi. Miðað við hvað hún var orðin góð eftir barnsburð í lok síðasta árs þá hef ég ekki minnstu áhyggjur af því að hún sé að fara að halda áfram að bæta sig og vera einn besti markmaður Íslands í lengri tíma."


„Skoða hvort ég verði áfram eða prófi eitthvað nýtt"
Hvernig er staðan á samingamálum Guðrúnar og er hún farin að horfa annað?

„Eftir tímabilið 2019 ákvað ég skrifa undir 1+1 samning (báðir aðilar gátu sagt upp samningnum) við Djurgården og sanna mig upp á nýtt. Ég var persónulega ánægð með tímabilið 2020 og liðið spilaði vel þó við náðum ekki í úrslitin sem við vildum. Þannig ég er núna samningsbundin út nóvember. Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili, ég vona að við sem lið getum byggt ofan á góðu hlutina og komið okkur frá botnbaráttunni. Núna er einbeitingin öll á að gera allt sem ég get svo við sýnum okkar besta í sumar og klifrum hærra í töflunni. Síðan eftir það verð ég bara að skoða hvort ég verði áfram eða prófi eitthvað nýtt."

Mikilvægt að byggja upp fyrir komandi tíma
Er Guðrún í námi eða að gera eitthvað meðfram fótboltanum í Svíþjóð?

„Já, ég er núna í 75% vinnu sem endurskoðandi hja EY, þannig það er nóg að gera. Ég er með sveigjanlegan vinnutíma þar þannig ég get svolítið raðað tímunum sjálf í kringum æfingar sem er rosalega hentugt. Maður er ekki að þéna svo mikið sem atvinnukona og mér persónulega finnst mikilvægt að hugsa út í það að byggja upp fyrir komandi tíma, eftir fótboltann. Þó ég stefni nú á að vera í boltanum í þónokkurn tíma í viðbót."

Sigraði í ljóðasamkeppni tíu ára gömul
Að lokum, Guðrún sagði á sínum tíma frá því í 'hinni hliðinni' að hún hefði unnið í svokallaðari Mjólkurfernu-ljóðasamkeppni. Hvernig hljóðaði ljóðið?

„Haha, það er góð spurning. Þemað var allavega „Hvað er að vera ég” og snérist ljóðið um hvað tíu ára gamalli Guðrúnu fannst gaman að gera," sagði Guðrún.
Athugasemdir
banner
banner